Ljóshærð kona í sjúkrabíl frá heimili Tigers Óli Tynes skrifar 8. desember 2009 16:00 Tiger og Elín meðan allt lék í lyndi.
Yfirvöld vilja ekkert segja um hvaða kona það var sem var flutt frá heimili Tigers Wood klukkan hálf þrjú um nóttina. Eiginkona hans Elin Nordgren er að vísu ljóshærð, en því er haldið fram að hún sé þegar flutt að heiman. Ef það er rétt hefur þetta tæpast verið hún. Líklega hefur undanfarin vika verið ein sú skelfilegasta í lífi Tigers. Allt frá því hann lenti í hinu dularfulla bílslysi framan við hús sitt, berfættur um miðja nótt og með Elínu sveiflandi golfkylfu, hafa konur verið að skríða undan steinum og segjast hafa átt í ástarsambandi við hann. Tiger þykir hafa gert slæma uppákomu enn verri með ruglingslegum viðbrögðum sínum. Hann neitaði að tala við lögreglu eftir slysið og sendi frá sér skrýtnar yfirlýsingar. Fyrst um að slysið hefði verið sér einum að kenna en ekki hinni kylfusveiflandi Elínu. Svo kvaðst hann hafa syndgað gegn fjölskyldu sinni, án þess að útskýra það nánar. Framganga hans er borin saman við framgöngu gamla sjónvarpsúlfsins Davids Lettermans, þegar orðrómur fór af stað um hans framhjáhald. Lettermann játaði allt í beinni útsendingu og þarmeð var vangaveltum fjölmiðla lokið. Letterman er svo öruggur með sig að hann byrjaði síðasta þátt sinn á að segja; -Mikið vildi ég að Tiger hætti að hringja í mig til þess að biðja um ráð.
Mest lesið Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fleiri fréttir Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Sjá meira