Ráðherrar gera grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum sínum 26. mars 2009 14:38
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa nú allir gert grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum sínum og trúnaðarstörfum sem þeir gegna. Ríkisstjórnin ákvað þann 17. mars síðastliðinn að gera grein fyrir þessum upplýsingum og nú hafa allir ráðherrarnir skilað þeim inn. Skemmst er frá því að segja að ráðherrar núverandi ríkisstjórnar eiga lítilla eða engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta og gegna fáir þeirra einhversskonar trúnaðarstörfum fyrir utan flokka þeirra. Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra á sæti í Þjóðleikhúsráði en situr ekki í því á meðan hún er ráðherra. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra hefur gegnt formennsku í BSRB frá árinu 1988 en frá því að hann tók sæti á Alþingi vorið 1995 hefur hann ekki þegið laun frá samtökunum að því undanskildu er hann þrívegis hefur tekið stutt launalaus leyfi frá Alþingi. Þegar Ögmundur tók við embætti heilbrigðisráðherra tók hann sér um leið leyfi frá störfum fyrir BSRB. Össur Skarphéðinsson utanríkis- og iðnaðarráðherra er varaformaður í styrktarsjóði hjartveikra barna. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra er með skrifstofuaðstöðu í Háskóla Íslands. Þá er hann í leyfi frá ýmsum stjórnarstörfum sem tengjast starfi hans fyrir Háskóla Íslands. Hann þiggur engin laun eða önnur fríðindi vegna þessa á meðan hann er í leyfi. Þá er Gylfi stjórnarformaður Norðurstígs ehf., sem er félag í eigu fjölskyldu eiginkonu Gylfa. Félagið á og rekur fasteign við Norðurstíg en stjórnarformennska Gylfa er ólaunuð. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segist sjá um stöku námskeið eða fyrirlestra um bókmenntir t.d. hjá Endurmenntun. Upplýsingarnar eru í samræmi við reglur forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings frá 16. mars 2009. Hér má kynna sér svör ráðherranna betur.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Sjá meira