Svandís er slíkt heljarmenni 22. október 2009 20:31 Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Ung Vinstri græn sendu frá sér ályktun í kvöld þar sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um að fresta hinni svokölluðu Suðvesturlínu er studd. Í ályktuninni segir að stundum sé erfitt að standa við það sem maður telji rétt. Undanfarna daga hafi Svandís hinsvegar sýnt svo um munar að hún sé slíkt heljarmenni. „Það er auðvelt að missa sjónar á stóra samhenginu og langtímahagsmunum þegar heil þjóð stendur frammi fyrir jafnslæmu efnahagsástandi og Íslendingar. Þá er auðvelt að stíga bensínið á stóriðjutrukknum í botn - virkja, bræða, reyna að græða. „Í þessum ólgusjó, þá gengur ekkert að hugsa um smámál," segja stóru karlarnir og eiga þar við smælkið sem má hunsa: umhverfi Íslands, lofthjúp heimsins - já, og þá litlu spurningu hvort sé yfir höfuð til næg orka í landinu til að seðja stóriðjulosta þeirra gráðugustu," segir í ályktuninni. Þá segir að vandamál Íslands verði ekkil eyst með botnlausri stóriðjustefnu. Slíka stefna hafi verið rekin í 18 ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og hún hafi ekki náð að forða landinu frá kreppu, heldur hafi í raun gert skellinn mun harðari en hann ella hefði orðið. „Slík stefna krefst þess að horfið sé frá heilbrigðri skynsemi; stórframkvæmdir séu hlutaðar sundur til að svindla þeim í smáskömmtum í gegnum umhverfismat, allri framtíðarorku landsins sé troðið í örfáar mengandi verksmiðjur og öllum árum róið að einni einustu lausn út úr ólgusjónum." Þá segir að nú þurfi ríkið að taka á honum stóra sínum og styðja sem flest það sem getur reist íslenskt efnahagslíf við. „Í því starfi er ekki skynsamlegt að einblína á stóriðjuna, sem þegar hefur brugðist. Skynsamlegt er að hugsa til framtíðar, líkt og umhverfisráðherra gerir. Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir fullum stuðningi sínum við Svandísi Svavarsdóttur og treystir henni til að fylgja sannfæringu sinni nú sem endranær."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira