Gítar KK frystur í New York 23. febrúar 2009 05:00 KK bíður spenntur eftir að endurheimta Martin-gítar sinn frá New York. fréttablaðið/gva „
Ég var alveg eyðilagður þegar hann brotnaði í flutningunum," segir tónlistarmaðurinn KK, sem bíður spenntur eftir að endurheimta forláta Martin-gítar sinn sem hefur undanfarna mánuði verið fastur í New York. Gítarinn, sem er handsmíðaður af gerðinni D-35, skemmdist í flutningum síðsumars í fyrra og sendi KK hann þá út til Martin-verksmiðjunnar í New York til viðgerðar með dyggri aðstoð Tónastöðvarinnar. Vegna mikils frosts í stórborginni hafa starfsmenn verksmiðjunnar ekki þorað að senda gítarinn til Íslands og hefur hann því setið þar fastur í marga mánuði. „Þeim er svo annt um hljóðfærin að þeir senda þau ekki fyrr en sendingarleiðin er orðin örugg," segir KK og kann vel að meta þessi vönduðu vinnubrögð. Hann er engu síður orðinn óþolinmóður að fá gítarinn í hendurnar, enda hefur hann samið öll sín bestu lög á hann, þar á meðal Vegbúann. Vegna viðgerðarinnar sá KK sig tilneyddan til að kaupa sér nýjan Martin sem hann ætlaði síðan að selja en telur nú ólíklegt að svo verði. Þar með á hann fimm Martin-gítara í glæsilegu safni sínu. „Þetta eru bestu gítarar í heimi," segir hann og nefnir Johnny Cash, Bob Dylan og Woody Guthrie sem dygga Martin-aðdáendur í gegnum tíðina. KK er sérlega ánægður með liðlegheit Tónastöðvarinnar í málinu. „Þeir komu mér á framfæri því það er erfitt að fá gítara uppgerða hjá Martin. Þeir eru með góð sambönd og kannski sögðu þeir að ég væri frægur á Íslandi," segir hann og glottir. Vonast hann til að endurheimta gítarinn á næstu dögum eftir langa og erfiða bið. - fb
Mest lesið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Sjá meira