Neitaði allri sök en hlaut níu ára dóm Stígur Helgason skrifar 20. mars 2009 06:00 Aldrei hefur viðlíka magn af fíkniefnum verið tekið í einu. Vísir/GVA
Athafnamaðurinn Þorsteinn Kragh var í gær dæmdur í níu ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innflutning á tæplega 200 kílóum af hassi og 1.300 grömmum af kókaíni. Aldraður Hollendingur, Jacob van Hinte, sem flutti efnin til landsins falin í húsbíl, hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm. Hollendingurinn játaði sök en Þorsteinn neitaði aðild að málinu. Dómurinn telur vitnisburð Þorsteins með ólíkindum og að engu hafandi. Efnið barst til landsins 10. júní í fyrra. Lögregla handtók Hollendinginn vegna þess að hann var eftirlýstur erlendis en lögregla vissi ekki af efnunum, sem voru vel falin í húsbílnum, fyrr en hann vísaði á þau. Sérstakt áhald þurfti til að opna leynihólf þar sem efnin voru geymd. Hollendingurinn bar í fyrstu að maður sem hann kallaði Kimma hafi fengið hann til innflutningsins, og benti á Þorstein við sakbendingu og sagði að þar færi Kimmi. Hann sagðist hafa flutt inn 50 kíló af hassi í félagi við Þorstein árið 2007, og hefði átt að fara eins að í þetta skiptið og afhenda Þorsteini efnið við gufubaðið á Laugarvatni, sem Þorsteinn rak. Hann hafi átt að fá 40 þúsund evrur fyrir viðvikið. Síðar í rannsókninni tók framburður hans hins vegar u-beygju og skyndilega kannaðist hann ekkert við aðild Þorsteins. Sagði hann þá Breta að nafni Bill og Jim hafa skipulagt innflutninginn.Þorsteinn Kragh.Vísir/GVAÞorsteinn sagðist kannast við Hollendinginn. Hann hafi ferjað á áttunda tug ellilífeyrisþega frá Seyðisfirði og í gufubaðið sitt fyrir Hollendinginn á sínum tíma og hafi auk þess ætlað að útbúa stjörnukort fyrir öldunginn, sem hafi haft mikinn áhuga á stjörnufræði. Ekkert af þessu kannaðist Hollendingurinn við. Dómurinn taldi sannað, út frá upplýsingum um símnotkun og bankagögnum, að Þorsteinn hefði skipulagt smyglið og að Hollendingurinn hefði breytt framburði sínum eftir að hann hitti Þorstein á Litla-Hrauni. Segir í dómnum að breyttur framburður Jabobs van Hinte sé „svo ótrúverðugur og reyfarakenndur að hann verði ekki lagður til grundvallar niðurstöðunni“. Þá sé framburður Þorsteins með ólíkindum og „í algjöru ósamræmi við flest annað sem fram er komið í málinu“. Þorsteinn eigi sér engar málsbætur. Það er metið Hollendingnum til refsilækkunar að hann játaði sök og benti á Þorstein, þótt hann hafi síðar dregið þann framburð sinn til baka. Líklegt er að dómnum verði áfrýjað.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira