Innlent

Mörður Árnason: Stjórnarandstaðan í hysterískri hávaðasvörun

Mörður Árnason.
Mörður Árnason.

Samfylkingarmaðurinn og fyrrum þingmaðurinn Mörður Árnason segir stjórnarandstöðuna vera fasta í magnandi hávaðasvörun vegna Icesave deilunnar en lausn á henni var kynnt í fjölmiðlum í dag.

Þar kom fram að ríkið þyrfti að greiða 640 milljarði vegna Icesave, vextirnir væru 5.5 prósent en afbrogarnir hæfust ekki fyrr en árið 2015.

Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur meðal annars gagnrýnt þessa leið og bendir á að vextirnir einir eru yfir 30 milljarði eða árstekjur 10 þúsund einstaklinga.

Á bloggi sínu ritar Mörður: „Samningurinn virðist vera skárri en við mátti búast. Vextirnir eru erfiðir en plúsinn er auðvitað sjö ára greiðslufrestur, og á meðan eru líkur á að miklu meira náist af Landsbankaeignum uppí skuldina en flestir héldu."

Hann líkir mótmælum stjórnarandstöðunnar við hegðun fólks á öldurhúsum borgarinnar.

Hann skrifar: „Tónlistin er hávær í hátölurunum, fruss í kaffivélinni og umferðarniður fyrir utan - gestirnir verða að tala hærra til að yfirgnæfa hávaðann sem aftur þýðir að á næstu borðum þurfa menn líka að hækka róminn og fyrstu gestirnir brýna röddina og á þarnæsta borði er byrjað að æpa. Svona ferli heitir einmitt „magnandi svörun" í loftslagsbreytingafræðum."

Þá vill hann einnig meina að viðbrögðin séu hættuleg, borgum við ekki gætum við allt eins sagt okkur úr samfélagi þjóðanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×