Fær átta milljónir vegna vélsleðaslyss 23. mars 2009 13:58 Mynd úr safni
Eigandi vélsleða var dæmdur til þess að greiða stúlku rúmlega átta milljónir króna í bætur vegna slyss sem hún varð fyrir er hún ók vélsleðanum. Slysið átti sér stað árið 2002 við Hafravatn og féll hún af sleðanum og fékk þungt höfuðhögg. Eigandi vélsleðans er talin hafa borið ábyrgð á því að stúlkan sem þá var sautján ára gömul hafi ekki verið með hjálm. Hinn 10. mars 2002 fór stúlkan ásamt manninum og kærasta sínum, syni stefnda, að Hafravatnsvegi. Í þeirri ferð ók stúlkan vélsleða, af gerðinni Kawazaki, og kastaðist hún af sleðanum og slasaðist. Vélsleðinn var ótryggður, en maðurinn var eigandi hans. Ágreiningur var með aðilum um aðdraganda ferðarinnar og atvik á Hafravatnsvegi þegar slysið varð. Stúlkan kastaðist af sleðanum og lenti á snjóskafli. Við það hlaut hún nokkuð þungt höfuðhögg. Við höggið höfuðkúpubrotnaði stúlkan og blæddi inní kúpuna en hún marðist einnig á heila. Vegna þess þurfti hún að undirgangast nokkrar aðgerðir og m.a. var fjarlægt skemmt svæði úr heila stúlkunnar. Flogaveiki og þunglyndi Stúlkan hélt því fram fyrir dómi að afleiðingar slyssins á heilsufar hennar hefðu verið verulegar, bæði líkamlegar og andlegar. Líkamlegar afleiðingar slyssins séu fyrst og fremst verulegur heilaskaði sem sé einnig rót hluta andlegra afleiðinga slyssins. Meðal andlegra afleiðinga megi nefna persónuleikabreytingar, þunglyndi og kvíða, áráttuhegðun o.fl. Sömuleiðis hafi veruleg seinkun orðið á skólagöngu stefnanda vegna andlegra afleiðinga slyssins, auk þess sem hún hafi misst hlutastarf sitt vegna þeirra. Þá hafi stefnandi farið að finna fyrir flogum árið 2005 og síðan verið greind með flogaveiki, sem talin sé bein afleiðing slyssins. Í dómi hérðasdóms kemur fram að hjálmur hefði komið í veg fyrir afleiðingar slyssins. Þar segir að stúlkunni hafi ekki staðið til boða hjálmur og telja verið að á manninum hafi hvílt sú skylda að sjá til þess að öryggisbúnaður væri fyrir hendi og notaður. Eins og fyrr segir var maðurinn dæmdur til þess að greiða stúlkunni rúmar átta milljónir króna með 4,5% vöxtum en slysið átti sér stað árið 2002.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira