Guffi bílasali stefnir ótrauður á þing 13. febrúar 2009 07:00 Gjörþekkir mannlegt eðli og telur það ákjósanlegan kost fyrir þingmann. fréttablaðið/stefán „
Hverjum geturðu treyst ef þú getur ekki treyst bílasalanum þínum?" er slagorð Guðfinns Halldórssonar - Guffa bílasala - í komandi kosningabaráttu. Maðurinn á bak við slagorðið: Frúin hlær í betri bíl!, Guffi, ætlar fram í komandi alþingiskosningum. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn að sjálfsögðu og stefnir á framboð í Reykjavík. „Já, ég ætla í framboð. Maður hefur fengist við Lalla Johns, Árna Johns, Ólaf Ragnar og allt þar á milli. Ég hlýt að búa yfir mikilli reynslu og þekki mannlegt eðli mjög vel. Hef marga fjöruna gengið og margan sjóinn sopið," segir Guffi fjallbrattur. Hann segist hafa verið bílasali nú í rúm fjörutíu ár. Sem er einsdæmi á Íslandi. Og segir að tali einhver illa um Sjálfstæðisflokkinn sinn komi sá ekki að tómum kofunum. „Það er harðbannað að pissa opinberlega án þess að það séu skilti þar um. Sama er með þessa menn sem voru gefnar frjálsar hendur. Það stóð hvergi að þeir ættu að haga sér eins og gíraffar. Kannski má skamma Sjálfstæðisflokkinn fyrir að hafa sett stóra Machintosh-dós fyrir framan lítið barn og segja að hann megi bara taka einn mola á viku. Verði að duga fram að jólum," segir Guffi og bregður fyrir sig líkingamáli. Helsta baráttumál Guffa er að skuldir almennings verði afskrifaðar. „Það verður að binda snöggan enda á þetta ástand sem er á heimilunum. Leggja af verðtryggingu, skila auðlindum aftur til fólksins. Ég er eindreginn andstæðingur kvótakerfisins og algert skilyrði er að við göngum ekki í Evrópubandalagið," segir Guffi bílasali sem stefnir ótrauður á þing. „Ef ég get ekki selt sjálfan mig, þá get ég ekki selt bíla. Og það get ég. Það liggur fyrir." - jbg
Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira