Gerði tónlist fyrir humarsúpu 13. febrúar 2009 04:30 Tölvuspiluð humarsúputónlist. 7oi losnar við söngfælnina á nýju plötunni. Fréttablaðið/gva
Tónlistarmaðurinn 7oi fékk óvænta kynningu á veitingahúsum í Japan. Ný plata með tónlistarmanninum 7oi (Jóhann Friðgeir Jóhannsson), Don’t Push The Rocks In My Face, er komin út. Þetta er fimmta platan hans, en hinar voru heimabrugg sem vöktu athygli í ýmsum afkimum. Meðal þeirra sem kveiktu á tónlistinni var Íslandsvinurinn Yuka Ogura sem komið hefur á ófáar Airwaves og er öðrum duglegri að koma íslenskri tónlist á framfæri í Japan. Í gegnum hana var tónlist Jóhanns notuð í fimmtíu útibúum súpuveitingahússins Soup Stock Tokyo í Japan. „Keðjan var víst að byrja með íslenska humarsúpu á matseðlinum og þeir vildu fá íslenska tónlist af því tilefni. Ég var látinn búa til klukkutíma af tónlist sem síðan gekk í lúppu á þessum stöðum,“ segir Jóhann. Hann segir þetta tækifæri hafa verið góða hvatningu til að klára nýju plötuna og hann hefur þegar selt slatta af henni til Japans. Jóhann ólst upp á Ísafirði. Hann hefur fengist við tónlistarsköpun síðan hann fékk fyrstu tölvuna sína á unglingsaldri og klárar tónsmíðanám frá LHÍ í vor. Nýja platan er fjölbreytt en lögin eiga það sameiginlegt að vera lágstemmd. Þá syngur Jóhann nú í fyrsta skipti á plötum sínum. „Ég ákvað bara að losa mig loksins við söngfælnina. Fólk getur til dæmis hlustað á lagið „Bad Times were enjoyed by all“ og róað sig aðeins á þessu kreppudrama í smá stund.“ drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira