Framkvæmdastjóri Strætó biðst afsökunar 8. júlí 2009 21:20 Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó Bs.
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó Bs, vill koma á framfæri afsökunarbeiðni til foreldra átta ára drengs sem var settur út úr leið S1 í Hamraborg í Kópavogi í gær vegna plássleysis. Móðir drengsins hafði samband við Vísi í gær, verulega ósátt. Málavextir eru í stuttu máli þeir að drengurinn var ásamt fimmtán ára bróður sínum á leið heim úr Kringlunni en þeir búa í Setberginu í Hafnarfirði. Þeir höfðu hjól meðferðis. Þegar vagninn stoppaði í Hamraborginni voru drengirnir settir út vegna plássleysis. „Þetta er vissulega leiðinlegt atvik og er sem betur fer fátítt að upp komi svona „árekstrar" við þá fjölmörgu farþega sem við flytjum á degi hverjum," segir Reynir. Hann bendir á að það komi fram á vefsíðu strætó að leyfilegt sé að vera með reiðhjól ef pláss er í vagninum, en barnavagnar og hjólastólar hafi forgang. Hann segir þó að í þessu tilfelli hefði bílstjórinn getað brugðist við með öðrum hætti. „Hann hefði til dæmis getað sagt: „Strákar mínir, því miður er vagninn fullur. Hér eru skiptimiðar og næsti vagn stoppar hérna eftir hálftíma. Þá hefðu þeir allavega vitað hvað þeir áttu að gera," segir Reynir og telur að setja þurfi í verklagsreglur bílstjóra að þeir megi vera sveigjanlegri í tilvikum þar sem að svo ung börn eiga í hlut. Hann bendir á að reiðhól eru ekki heimiluð í strætisvögnum í nágrannalöndunum. Aðrir farþegar eigi til að óhreinkast vegna hjólanna og ef slíkt gerist þurfi Strætó að greiða fyrir tjónið sem af því hlýst. Reynir segir þetta einstaka tilvik vera andsi óheppilegt og vill hann koma á framfæri afsökunarbeiðni fyrir hönd Strætó Bs. til foreldra drengsins. „Ég hef beðið mitt fólk að setja sig í samband við foreldrana og biðja þá afsökunar á þessu atviki."
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira