Fær loksins að sjá skýrslurnar 2. apríl 2009 06:15 Ólafur Þór ætlar nú að þaullesa skýrslurnar um gömlu bankana þrjá. Fréttablaðið/daníel
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um bankahrunið, á von á því að verða kominn með skýrslur endurskoðunarfyrirtækjanna um gömlu viðskiptabankana í hendur í dag. Honum hefur hingað til verið neitað um aðgang að þeim vegna bankaleyndar, en í gær tóku gildi breytt lög um embætti hans sem rýmka valdheimildirnar. Stóru endurskoðunarfyrirtækin unnu skýrslurnarnar síðasta haust fyrir Fjármálaeftirlitið og hafa þær fram að þessu verið sveipaðar leyndarhjúp. Fjölmiðlar hafa ekki fengið aðgang að þeim og Ólafur Þór ekki heldur. Öllum öðrum en Rannsóknarnefndinni um bankahrunið hefur verið svarað á þá leið að í skýrslunum sé of mikið af þagnarskyldum upplýsingum til að hægt sé að láta þær af hendi. „Ég gerði ráðstafanir í dag [gær] til að nálgast þær [skýrslurnar] og við getum þá farið að rýna svolítið í þær og fóta okkur aðeins betur í þessu. Það er fyrsta skref," segir Ólafur Þór. Ólafur segir að sér hafi borist nokkuð af ábendingum um saknæmt athæfi í aðdraganda bankahrunsins og hann hafi nú þó nokkur mál til rannsóknar, þar af nokkur umfangsmikil. Hann segist þó ekki geta tíundað nánar hvers eðlis málin séu. Þá fari einnig tími í það þessi dægrin að ráða nýtt starfsfólk til embættisins.- sh
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira