Fjörutíu handteknir í Kaupmannahöfn 12. desember 2009 04:30 Lögreglan hefur komið upp búrum þar sem handteknum verður komið fyrir, en hún hefur mikinn viðbúnað í kjölfar loftslagsráðstefnunnar. Fyrri viku ráðstefnunnar er að ljúka.nordicphotos/afp
Um tvö hundruð mótmælendur voru á götum miðborgar Kaupmannahafnar í gær þar sem forstjórar stórfyrirtækja funduðu um loftslagsmál. Fundur þeirra var ekki á opinberri dagskrá loftslagsráðstefnunnar en tengdur henni, líkt og fjöldi annarra. Mótmælendur börðu bumbur og hrópuðu að forstjórunum. Lögreglan hafði mikinn viðbúnað eins og hún reyndar hefur haft alla vikuna. Fjörutíu mótmælendur voru handteknir. Engar fregnir höfðu borist af ofbeldisverkum, en Henrik Moeller Nielsen, talsmaður lögreglunnar, sagði að fólkið hefði verið handtekið til að fyrirbyggja ofbeldi. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur fengið auknar heimildir til handtöku í tengslum við ráðstefnuna. Þá hefur hún komið fyrir búrum í Valby, úthverfi Kaupmannahafnar, þar sem koma má fyrir 346 föngum. Fjöldi viðburða hefur verið í tengslum við ráðstefnuna, bæði á vegum skipuleggjenda og almennings. Fólk hefur nýtt sér athyglina til ýmissa mótmæla, bæði tengdum loftslagsmálum og öðrum, svo sem herferð í Afganistan. Mótmælin hafa gengið átakalaust fyrir sig hingað til. Í dag er boðað til svokallaðs alþjóðadags aðgerða og er búist við allt að 60 þúsund manns í göngu sem leggur upp frá Kristjánsborg klukkan 13, að staðartíma. Gengið verður að Bella Center, þar sem ráðstefnan fer fram. Yfirvöld eru við öllu búin, en gangan á að vera friðsöm. Á morgun er boðað til annarrar göngu, sem líklega verður fámennari, en ekki er eins víst að hún verði friðsöm. Allt er enn í járnum á ráðstefnunni sjálfri og deila Bandaríkjamenn og Kínverjar ákaft um hvernig fylgst verður með útblæstri gróðurhúsalofttegunda í mismunandi löndum. Nokkuð er deilt um kostnað, en nefnt hefur verið að langtímakostnaður við að verja þróunarríki fyrir áhrifum hlýnunar jarðar geti hlaupið á 100 milljörðum evra árlega, um 18.300 milljörðum íslenskra króna að núvirði. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira