Leitar að arftökum Quarashi 22. janúar 2009 06:00 Steinar Jónsson ásamt félögum sínum Óskari Axeli Óskarssyni og Tóna í nýja hljóðverinu, Stúdíó Róm. MYND/fréttablaðið/anton
Athafnamaðurinn Steinar Jónsson leitar þessa dagana að arftökum rappsveitarinnar vinsælu Quarashi. Hann hefur stofnað hljóðverið Stúdíó Róm ásamt félögum sínum og vonast til lokka þangað hæfileikaríka tónlistarmenn, þar á meðal sjóðheita rappara. „Þetta er konsept sem ég er mjög svo til í að endurnýja. Þeir sjálfir hafa sagt að það hafi engin hljómsveit komið eins og Quarashi eftir að þeir hættu, enda eru þeir með sérstakt „sánd“,“ segir hinn sautján ára gamli Steinar Jónsson sem nú leitar að hæfileikaríkum tónlistarmönnum til að prófa sig í hljóðveri hans. Steinar játar að hafa verið mikill aðdáandi þegar hann var yngri. „Ég keypti allar plöturnar þeirra en reyndar fékk ég aldrei að mæta á tónleika með þeim því ég var of ungur.“ Þrátt fyrir aldurinn hefur Steinar verið iðinn við kolann undanfarin ár. Hann hélt tónlistarhátíðina Iceland Music Festival á Tunglinu í fyrra þar sem ungar hljómsveitir fengu að spreyta sig og einnig gaf hann út fyrstu plötu rapparans Dabba T. Í framhaldinu stofnaði hann útgáfufyrirtækið MediaStream Records og var um tíma umboðsmaður nokkurra tónlistarmanna. Steinar ætlaði á síðasta ári að sýna söngleik byggðan á söngvamyndinni vinsælu High School Musical en hætti við á síðustu stundu. „Ég held að það sé ekki nógu stór markaður fyrir þetta á Íslandi. Það var búið að þýða söngleikinn og semja um öll leyfin en síðan gekk dæmið ekki upp,“ segir hann. Þeir sem hafa áhuga á að reyna fyrir sér í tónlistinni með hjálp Steinars geta sent honum póst á netfangið hamraborg@mediastreamrecords.com. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Allt í einu orðin mamman sem missti barnið sitt Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Fleiri fréttir Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein