Lífið

Með barn á brjósti í kosningaslag

Sigríður  Ásthildur Andersen og Áslaug nýfædd dóttir hennar sem kom í heiminn 7. mars síðastliðinn.
Sigríður Ásthildur Andersen og Áslaug nýfædd dóttir hennar sem kom í heiminn 7. mars síðastliðinn.

Sigríður Ásthildur Andersen, sem sækist eftir einu af fjórum efstu sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eignaðist sitt annað barn fyrir viku og það í miðri kosningabaráttu.

Vísir hafði samband við Sigríði til að kanna hvort hún treysti sér í slaginn og hvernig fæðingin gekk.

„Ég starfa sem héraðsdómslögmaður og hef gert ráð fyrir því að taka mér leyfi frá lögmennskunni út þetta ár. Það er hins vegar með lögmennskuna eins og örugglega mörg önnur störf að það getur verið erfitt að slíta sig alveg frá verkunum. Það er nú heldur kannski ekki nauðsynlegt þegar um barnsburð er að ræða ef allt hefur gengið vel, - þetta er nú ekki sjúkdómur heldur einn jákvæðasti hluti lífsins," segir Sigríður.

„Fæðingin gekk voða vel, þó mun hraðar en ég bjóst við, svona express útgáfa af fæðingu eldri dóttur okkar. Við hjónin eigum eina dóttur fyrir, þriggja og hálfs árs, sem tekur litlu systur sinni afar vel," svarar Sigríður.

Ertu með kraftaverkið á brjósti og ertu vel frísk og til í slaginn?

„Já, það er allt komið á fulla ferð hér í fjósinu. Það þarf nokkra tækni við þetta."

„En það eru nú að rifjast upp fyrir mér gamlir taktar frá því fyrir þremur árum," svarar Sigríður.

„Verði ég kjörin á þing geri ég ráð fyrir að stytta þetta orlof eitthvað. Nýtt þing kemur trúlega ekki saman fyrr en í september. Jú, jú, rétt er að gera ráð fyrir einhverju sumarþingi að þessu sinni og ég treysti mér vel til að sitja það. Annars er þingmennskan þannig að hún fer ekki nema að litlu leyti fram á þingfundum."

„Við erum svo heppin að eiga ömmur og afa sem hjálpa okkur mikið, sérstaklega með stóru systur. Þau skutla og sækja stundum í leikskólann," segir Sigríður.

„Annars hafa fjölskyldur okkar, sem og nánustu vinir, verið afar hjálplegar lika í prófkjörsbaráttunni. Það eru allir venslaðir manni virkjaðir í pólitíska slaginn."

„Ætli þetta blessaða fólk sé ekki manna fegnast því að þessum slag er nú að ljúka, - og bíður nú eftir næsa stormi," segir nýbökuð mamman að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.