Innlent

Sævar Ciesielski ætlar í framboð

Sævar Ciesielski.
Sævar Ciesielski.
Sævar Ciesielski, sem fékk þyngsta dóminn í Geirfinnsmálinu svokallaða, hefur ákveðið að stofna nýtt framboð. ,,Ég fékk listabókstafinn N. N stendur fyrir námsmenn." Sævar segist hafa verið úthlutað bókstafnum í dómsmálaráðuneytinu.

Í byrjun febrúar tilkynnti Sævar um framboð sitt fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi en hann segir að flokkurinn hafi ekki viljað setja sig á lista.

,,Þeir sögðu að ég væri ekki með í póstkosningunni þannig að ég gekk úr flokknum og stofnaði nýjan," segir Sævar.

Auðævi þjóðarinnar felast í menntun og þekkingu, að mati Sævars sem berst fyrir námsmenn. ,,Hér á landi og erlendis og enginn stjórnmálamaður hefur staðið upp með þeim sem minnst mega sín eða hjálpað námsmönnum í kreppunni," segir Sævar.

Sævar segir að samtök sín ætli að berjast fyrir réttindum ungs fólks, auknum aflaheimildum til sjávarþorpa og standa vörð um landbúnaðinn. Aðild að Evrópusambandinu kemur ekki til greina, að mati Sævars.


Tengdar fréttir

Ciesielski segir sig úr Framsókn

„Nei, þeir vilja ekki setja mig á lista. Þannig að ég fór í Framsóknarflokkinn til að segja mig úr honum aftur. Þeir skilja ekki út á hvað þetta gengur,“ segir Sævar Ciesielski.

Sævar vill 1. sætið í Suðurkjördæmi

Sævar Ciesielski, sem fékk þyngsta dóminn í Geirfinnsmálinu svokallaða, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Flokkurinn fékk tvo þingmenn kjörna í kjördæminu fyrir tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×