Lífið

Fjórir tebollar fyrir frumsýningu

Fjölskyldan var að sjálfsögðu samankomin á frumsýningunni í Smárabíó. Frá hægri: Unnar Snær, Þorkell, Þorsteinn, Margrét og Eric.
Fjölskyldan var að sjálfsögðu samankomin á frumsýningunni í Smárabíó. Frá hægri: Unnar Snær, Þorkell, Þorsteinn, Margrét og Eric. Fréttablaðið/Vilhelm

Sólskinsdrengurinn var frumsýnd í Smárabíói á föstudagskvöldið að viðstöddu margmenni.

„Þetta var dásamlega upplifun, að sjá barnið sitt mótað og fæðast eftir þriggja ára meðgöngu,“ segir Margrét Dagmar Ericsdóttir, mamma Þorkels. Eins og kom fram í viðtali við Margréti í Fréttablaðinu á laugardaginn stóð alls ekki til í upphafi að Margrét og Keli yrðu í aðalhlutverki í myndinni. Heldur að þetta yrði einhvers konar vísindaleg heimildarmynd um einhverfu. En svo breyttist verkið í meðförum Friðriks Þórs og Margrét og Keli urðu miðpunkturinn.

„Friðrik sannfærði mig um að ég yrði bara eitthvað tvö til þrjú prósent af myndinni en ég held að það sé óhætt hægt að margfalda það með tíu,“ segir Margrét og viðurkennir að hún hafi fengið sér fjóra Sleppytime Te-bolla fyrir frumsýninguna enda hafi hún verið vöruð við hvíta tjaldinu. „Ég var hins vegar nokkuð sátt, fannst kannski röddin mín svolítið skrýtin.“

Sólskinsdrengurinn hefur átt hug Margrétar í þrjú ár og því er löngu tímabili í lífi hennar að ljúka. Margrét hefur reyndar þurft að taka símann sinn úr símaskrá enda hafa fjölmargir sett sig í samband við hana vegna myndarinnar. „Ég er bara að reyna að hvíla mig eftir þessa törn. Auðvitað vill maður samt reyna að hjálpa sem flestum.“ -fgg

fyrrverandi Forseti og Þorkell Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, og Þorkell hittust skömmu áður en ljósin voru slökkt í stóra sal Smárabíósins.
Tveir forsetar Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heilsar upp á þau Margréti Dagmar og Þorstein. Væntanlega heyrir það til undantekninga þegar tveir forsetar lýðveldisins eru á sömu frumsýningunni.


Glæsilegt skegg Björgólfur Thor skartaði glæsilegu skeggi á frumsýningunni og hér er hann ásamt frænku sinni, Hugrúnu Margréti.
Leikstjóri og framleiðandi Kristín Ólafsdóttir, eiginkona Björgólfs Thors, er einn framleiðandi myndarinnar. Hér er hún ásamt leikstjóranum Friðriki Þór.
Mæðgurnar mættar Bryndís Schram og dóttir hennar, Kolfinna Baldvinsdóttir, voru mættar á frumsýningu Sólskinsdrengsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.