Lífið

Lýtalæknir: Gloss stækkar ekki varirnar

„Mér hefur svo sannarlega tekist að hrista upp í þjóðinni í heimsókn minni og það sem brennur nú á vörum flestra á klakanum eru VARIRNAR á mér," skrifaði Ásdís Rán á bloggið sitt.
„Mér hefur svo sannarlega tekist að hrista upp í þjóðinni í heimsókn minni og það sem brennur nú á vörum flestra á klakanum eru VARIRNAR á mér," skrifaði Ásdís Rán á bloggið sitt.

Í gegnum tíðina hafa lýtalæknar notað ýmis efni til að sprauta í húðina til þess að grynnka hrukkur í andliti. Einnig hafa efni verið notuð til að setja í varir til að bæta útlit þeirra og stækka og þá sér í lagi ef þær eru rýrar.

Algengasta efnið sem notað er í dag í þessum tilgangi á Íslandi er annaðhvort hyaluronsýra eða fita úr líkama sjúklings.

Vísir hafði samband við Ólaf Einarsson lýtalækni og spurði hann út í varastækkanir.

Ólafur Einarsson. MYND/Fréttablaðið.

„Það eru tveir möguleikar í þessu. Gloss er ekki hægt að nota til að stækka varirnar með. Í sumum tilfellum er notuð fita úr sjúklingnum og sett í varir viðkomandi. Það er varanleg aðgerð," segir Ólafur.

„Síðan er notað fyllingarefni sem er hyaluronsýra sýra en það er efni sem er í okkur öllum. Þetta efni er til dæmis í hvítu augans og í brjóski. Það er praktískt því enginn eða fáir hafa ofnæmi fyrir því," segir Ólafur.

Notar þú silikon til að stækka varir? „Nei það má ekki sprauta því inn í varirnar. Það var gert fyrir mörgum áratugum. En nei það gerir maður ekki," svarar Ólafur.

Hvernig fer aðgerðin á vörum fram. Er fólk svæft? „Nei. Fólk er ekki svæft þegar efni er sprautað inn í varirnar en ég deyfi sjúklinginn til að viðkomandi finni ekki til og þá get ég vandað mig og sett efnið jafnt í og fallega."

Sjá meira um fyllingarefni hér.


Tengdar fréttir

Þrýstnar varir Ásdísar Ránar - myndband

Mikið hefur verið rætt um varir Ásdísar Ránar eftir að hún var gestur Loga Bergmanns síðstliðinn föstudag. Ásdís skartaði einstaklega þrýstnum og girnilegum vörum sem vöktu mikla athygli. Í kjölfarið útskýrði hún leyndarmálið bak við varirnar þokkafullu á blogginu sínu.

Varir Ásdísar

„Mér hefur svo sannarlega tekist að hrista upp í þjóðinni í heimsókn minni og það sem brennur nú á vörum flestra á klakanum eru VARIRNAR á mér," skrifar Ásdís Rán á bloggið sitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.