Gamlir farsímar nýtast í hjálparstarfi 15. desember 2009 10:30
Græn framtíð og Síminn hvetja fólk til að styðja Hjálparstarf kirkjunnar fyrir jólin með því að koma með gamla og notaða GSM síma í verslanir Símans. GSM símarnir verða sendir í endurnýtingu og mun andvirði þeirra renna til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar, að fram kemur í tilkynningu. „Þörf fyrir aðstoð hefur vaxið gríðarlega á þessu ári en rúmlega helmingi fleiri leituðu til Hjálparstarfs kirkjunnar í október 2009 miðað við sama mánuð í fyrra, eða 319 í október í fyrra en 886 í sama mánuði í ár. Að baki hverjum umsækjanda voru 2,7 einstaklingar að meðaltali sem þýðir að 2.300 einstaklingar nutu aðstoðar í októbermánuði í ár," segir Bjarni Gíslason, fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Fram kemur í tilkynningunni að með því að koma með gamla og notaða GSM síma í verslanir Símans geta viðskiptavinir stutt gott málefni og um leið lagt sitt á vogarskálarnar í umhverfisvernd. Afrakstur söfnunarinnar verður afhentur Hjálparstarfi kirkjunnar í byrjun janúar. Bjarni segir að orsakir þess að fólk leiti til Hjálparstarfs kirkjunnar séu marþættar. „Þær eru í flestum tilvikum samspil nokkurra þátta, svo sem vegna lágra launa eða bóta, hárrar húsaleigu eða veikinda og atvinnuleysis. Búast má við erfiðum vetri og áframhaldandi fjölgun umsókna og mun Hjálparstarf kirkjunnar nota afrakstur söfnunarinnar til að mæta aukinni þörf á næsta ári." Tekið er á móti notuðum farsímum í öllum verslunum Símans; í Smáralind, Kringlunni, Ármúla og á Akureyri. Græn framtíð annast flutning á GSM símunum til vottaðra endurnýtingarfyrirtækja í Evrópu.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Fleiri fréttir Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Sjá meira