Samfylkingin endurgreiðir styrk 24. mars 2009 10:50 Frá landsfundi Samfylkingarinnar vorið 2007. Flokkurinn fékk 150 þúsund króna styrk frá Íslandspósti vegna kosningabaráttunnar sem flokkurinn hyggst nú endurgreiða.
Samfylkingin ætlar að endurgreiða síðar í dag 150 þúsund króna styrk sem flokkurinn fékk frá Íslandspósti árið 2007, segir Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Hún segir að Samfylkingin harmi mistökin og að verklagsreglur við öflun styrkja til flokksins verði hertar. Ríkisendurskoðun birti á föstudaginn í fyrsta skipti útdrætti úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna 2007. Þar kom fram að Íslandspóstur, sem er í opinberri eigu, styrkti Samfylkingu, Sjálfstæðisflokk, Vinstri græna og Framsóknarflokk. Samkvæmt ákvæði laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda er flokkunum óheimilt að taka við greiðslum frá stofnunum eða fyrirtækjum í eigum almennings. Sigrún segir að Samfylkingin hafi ætíð mælt fyrir auknu gegnsæi varðandi fjármögnun stjórnmálaflokkanna og bendr að ársreikningar flokksins frá árinu 2001 séu aðgengilegir á vef flokksins. Í úttekt Ríkisendurskoðunar kom einnig í ljós að Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 300 þúsund krónur. Neyðarlínan var ekki orðið opinbert hlutafélag þegar flokkurinn falaðist eftir framlaginu en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur endurgreitt fjárframlagið. Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar að flokkurinn tók við styrknum.
Tengdar fréttir Endurgreiði styrkinn frá Neyðarlínunni Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að afþakka 300 þúsund króna framlag sem Neyðarlínan veitti flokknum árið 2007 og endurgreiða það. 23. mars 2009 16:15 Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur. 21. mars 2009 11:25 Sjálfstæðisflokkur braut lög Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 22. mars 2009 00:00 Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007. 21. mars 2009 15:01 Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. 21. mars 2009 12:18 Harmar að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við framlögum frá Neyðarlínunni Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar að flokkurinn tók við fjárframlögum frá Neyðarlínunni. Í yfirlýsingu sem Andri hefur sent frá sér segir hann að framlagið hafi þegar verið endurgreitt og muni öll framlög sem stangist á við lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra verða endurgreidd. 23. mars 2009 17:28 Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar „Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra. 21. mars 2009 16:19 Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira
Endurgreiði styrkinn frá Neyðarlínunni Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að afþakka 300 þúsund króna framlag sem Neyðarlínan veitti flokknum árið 2007 og endurgreiða það. 23. mars 2009 16:15
Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur. 21. mars 2009 11:25
Sjálfstæðisflokkur braut lög Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 22. mars 2009 00:00
Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007. 21. mars 2009 15:01
Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. 21. mars 2009 12:18
Harmar að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við framlögum frá Neyðarlínunni Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar að flokkurinn tók við fjárframlögum frá Neyðarlínunni. Í yfirlýsingu sem Andri hefur sent frá sér segir hann að framlagið hafi þegar verið endurgreitt og muni öll framlög sem stangist á við lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra verða endurgreidd. 23. mars 2009 17:28
Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar „Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra. 21. mars 2009 16:19