Forseti þarf að synja til að vera sjálfum sér samkvæmur Kristján Már Unnarsson. skrifar 5. júlí 2009 18:38 Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.
Meginrök forseta Íslands fyrir að synja fjölmiðlalögum staðfestingar fyrir fimm árum voru þau að gjá hefði myndast milli þingvilja og þjóðarvilja. Skoðanakönnun um Icesave-samninginn sýnir að stór gjá hefur einnig myndast milli forystu ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar í því heita deilumáli. Um tvöþúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun á netinu til forseta Íslands að hafna að staðfesta Icesave-ábyrgðina, verði hún samþykkt á Alþingi, og vísa málinu í þjóðaratkvæði. Meginrök forsetans fyrir fimm árum þegar hann hafnaði fjölmiðlalögunum voru þau að djúp gjá hefði myndast á milli þjóðar og þings. Hann sagði þá: "Því miður hefur skort samhljóminn sem þarf að vera milli þings og þjóðar í svo mikilvægu máli. Fjölmiðlarnir eru sá hornsteinn í lýðræðisskipan og menningu okkar Íslendinga að ekki er farsælt að varanlega verði djúp gjá milli þingvilja og þjóðarvilja. Slíka gjá þarf að brúa. Það verður best gert með því að þjóðin fái í hendur þann rétt sem henni er veittur í stjórnarskrá lýðveldisins og meti lagafrumvarpið í þjóðaratkvæðagreiðslu." Gefi menn sér að forsetinn verði samkvæmur sjálfum sér er ljóst að ríkisstjórnin er í bobba. Skoðanakönnun Gallup, sem birtist fyrir fjórum dögum, sýnir að 60 prósent aðspurðra eru andvígir Icesave-ábyrgðinni, og aðeins 19 prósenta styðja hana. Forysta ríkisstjórnarinnar virðist því þurfa að brúa stóra gjá milli sín og þjóðarinnar í Icesave-málinu, vilji hún ekki eiga það á hættu að forsetinn hafni væntanlegum lögum og vísi þeim í þjóðaratkvæði.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Sjá meira