Miðasala hefst í dag á stofutónleika og húslestra á Listahátíð 25. mars 2009 09:28 Diddú er á meðal þeirra sem troða upp á stofutónleikum Listahátíðar.
Meðal fjölmargra viðburða á Listahátíð í Reykjavík í vor eru 25 stofutónleikar sem haldnir verða á jafn mörgum heimilum helgina 22.-24. maí og 11 húslestrar þar sem skáld og rithöfundar efna til húslestra á heimilum sínum helgina 30.-31 maí. Framúrskarandi tónlistarmenn/hópar úr sígildri tónlist, djassi, poppi, rokki, raftónlist og fleiri kimum koma fram og leika tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur. Meðal þeirra eru Dvorák-hópurinn, Bloodgroup, Melakvartettinn, Ólöf Arnalds, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Felix Bergsson, Áshildur Haraldsdóttir, Ásgerður Júníusdóttir, hljómsveitin Reykjavík!, Vicky, Bergþór Pálsson, Diddú, Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Valsson,Melchior, Tómas R. Einarsson, og svo mætti áfram telja að því er segir í tilkynningu frá Listahátíð. Stofutónleikarnir verða víðsvegar um Reykjavík, frá póstnúmerinu 101 til hverfis 111: 11 skáld og rithöfundar verða með húslestra á heimilum sínum á Listahátíð í Reykjavík laugardaginn og sunnudaginn, 30. og 31. maí. Hér er um einstaka og spennandi viðburði að ræða, en aðgangur er takmarkaður við stofustærð hvers og eins þannig að færri komast örugglega að en vilja. Í tilkynningunni segir að hér gefist sögulegt tækifæri til að kynnast ólíkum höfundum og verkum þeirra í návígi. „Ljóð, sögur, brot úr stærri verkum, barnaefni, smáprósi, útgefið og óbirt - allt í senn! Þau 11 skáld og rithöfundar sem flytja húslestra í lok maí eru Kristín Helga Gunnardóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Þórarinn Eldjárn, Guðrún Eva Mínervudóttir, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson, Gerður Kristný, Þorsteinn frá Hamri, Sigurbjörg Þrastardóttir, Sigurður Pálsson og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir." Þórunn Erlu Valdimarsdóttir mun standa fyrir húslestri. Líkt og stofutónleikarnir verða húslestrarnir víða um Reykjavík, nema einn húslestur mun fara fram í hverfi 210. Miðasala á stofutónleika og húslestra hefst á hádegi í dag, miðvikudaginn 25. maí en miðar eru eingöngu seldir á www.listahatid.is og www.midi.is. Örfáir miðar eru í boði á hverja stofutónleika og hvern húslestur, og er fólki aðeins hleypt inn gegn framvísun aðgöngumiða. Miðaverði er mjög stillt í hóf, verð á stofutónleika er 1.500 krónur en húslestra 1.000 krónur. Listahátíð í Reykjavík 2009 verður haldin 15.-31. maí. Þegar hafa sópransöngkonan Deborah Voigt og breska tríóið Tiger Lillies verið kynnt til sögunnar. Kraumur styður þátttöku ungra tónlistarmanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík.
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Fleiri fréttir „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Sjá meira