Stóra kerrumálið upplýst 23. október 2009 16:54
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo stórtæka kerruþjófa fyrr í vikunni. Um er að ræða karl á fimmtugsaldri og konu á fertugsaldri en málið komst upp þegar þau stálu tveimur kerrum á höfuðborgarsvæðinu. Kerrurnar voru auglýstar til sölu á Netinu og það kom lögreglunni á sporið. Frekari rannsókn hefur leitt í ljós að fólkið hefur stolið fjölmörgum kerrum síðustu mánuði en það virðist hafa farið í ránsferðir víða og tekið vel á annan tug kerra ófrjálsri hendi. Kerrurnar voru síðan auglýstar til sölu, ýmist í dagblöðum eða á Netinu. Vegna þessa ítrekar lögreglan að hún hvetur fólk til að hafa samband þegar þýfi er annars vegar. Ennfremur er minnt á ábyrgð þess, þegar svo ber undir, sem kaupir þýfi. Í 264. gr. almennra hegningarlaga er meðal annars kveðið á um eftirfarandi: Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti samkvæmt lögum þessum skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem geymir eða flytur slíkan ávinning, aðstoðar við afhendingu hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að því að tryggja öðrum ávinning af broti. Nú er brot ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið fangelsi allt að 4 árum. Sé brot framið af gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Fleiri fréttir Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Sjá meira