Búist við að bréf George Washington fari á 300 milljónir Atli Steinn Guðmundsson skrifar 3. desember 2009 08:03 Bréfið.
Búist er við nýju meti í verði uppboðsgripa hjá Christie's-uppboðshúsinu í New York þegar bréf frá 1787 verður boðið þar upp. Þetta er ósköp venjulegt sendibréf að sjá, fjórar síður handskrifaðar, enda ekki mikið um ritvélar á síðari hluta 18. aldar. Bréfritarinn gerir það hins vegar að verkum að menn búast við að þessar fjórar síður seljist fyrir upphæð sem samsvarar rúmum 300 milljónum íslenskra króna en það er George nokkur Washington sem undirritaði bréfið 9. nóvember 1787. Fáum þarf væntanlega að segja að Washington var fyrsti forseti Bandaríkjanna og tók við embættinu 30. apríl 1789, sem sagt tæpum tveimur árum eftir að hann skrifaði bréfið sem var til frænda hans. Í bréfinu skrifar Washington um stjórnarskrá Bandaríkjanna sem var heldur betur ný af nálinni á ritunartíma þar sem hún tók gildi 17. september þetta sama ár, 1787. Sagnfræðingar segja efni bréfsins einstakt þar sem í því megi finna eindregna stuðningsyfirlýsingu forsetans verðandi við nýju stjórnarskrána og rökstuðning fyrir stuðningnum. Bréfið hefur ekki komið fyrir sjónir almennings fyrr en nú og er fastlega búist við að hart verði tekist á um það á uppboðinu sem fram fer í næstu viku.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Fleiri fréttir Rússneskir njósnarar vildu kasta rýrð á Svía, NATO og ESB Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Sjá meira