Úr Smáfuglum yfir í Rómeó 31. mars 2009 06:30 Atli Óskar Fjalarsson leikur sjálfan Rómeó í leikritinu Rómeó og Júlía sem verður frumsýnt í kvöld. fréttablaðið/valli „
Ég hlakka rosalega til. Þetta verður örugglega alveg æðislegt,“ segir Atli Óskar Fjalarsson, sem leikur Rómeó í uppfærslu leikfélags Borgarholtsskóla á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Atli Óskar, sem lék í hinni margverðlaunuðu stuttmynd Smáfuglar eftir Rúnar Rúnarsson, hefur æft hlutverkið stíft síðustu sex vikur. „Þetta er bráðfyndin sýning þótt ég segi sjálfur frá. Það er mjög mikið af gríni en samt mikið af drama inn á milli eins og einkennir söguna. Við gerðum okkar eigin heim í kringum þetta þar sem allt getur gerst,“ segir hann. „Það er draumkenndur glamúr yfir sýningunni.“ Söguþráðurinn býður upp á sverðabardaga og fimleika auk þess sem fjögurra manna hljómsveit skólans leikur frumsamda tónlist. „Við fengum mann sem er búinn að starfa mikið við áhættuleik til að hjálpa okkur með skylmingaatriðin,“ segir Atli Óskar, sem hefur alveg sloppið við meiðsli. „Við skipulögðum atriðin mjög vel áður en við fórum að gera þau hratt.“ Atli, sem er sextán ára, hefur lítið leikið síðan hann steig fram á sjónarsviðið í Smáfuglum. Hann segir þá reynslu hafa verið frábæra. „Það var æðislegt að fá að taka þátt í svona mynd, sérstaklega vegna þess að hún fór svona langt og var margverðlaunuð.“ Leikstjóri Rómeó og Júlíu er Ágústa Skúladóttir og með hlutverk Júlíu fer Þuríður Davíðsdóttir. Verkið verður frumsýnt klukkan 20 í kvöld í Bæjarleikhúsi Mosfellsbæjar. - fb
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Sjá meira