Stillir til friðar á Gaza 12. janúar 2009 04:00 Jóhann Páll er hvergi smeykur við að ferðast til Egyptalands, nágrannaríkis Palestínu, en þar logar allt í átökum við Gaza-ströndina. Fréttablaðið/vilhelm „
Ég hef alltaf farið í frí eftir jólavertíðina til að ná mér aðeins niður,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi. Hann er á leiðinni til Egyptalands með fjölskyldu sína, lands sem margir myndu kannski hugsa sig tvisvar um að heimsækja í ljósi ástandsins í nágrannalandinu Palestínu. „Jú, það verður alveg að viðurkennast að Egyptaland var ekki fyrsti valkostur. Þegar bankarnir hrundu og gengið með þá tók ég eiginlega þá ákvörðun að leggja af þessa árlegu utanlandsferð. Mér þótti það bæði siðlaust og óverjandi að kaupa gjaldeyri á því verði sem hann er á í dag,“ útskýrir Jóhann og augljóst að honum er létt við að komast burt frá landinu. Svo mikil var neyðin að á einum tímapunkti kom eiginkonan með þá hugmynd að fara með alla fjölskylduna norður í skíðaferð. „Jafnvel þótt hvorki ég né hún kunnum á skíði,“ útskýrir Jóhann sem tók heldur fálega í þessa skíðaferðarhugmynd, þótti það síður en svo skemmtileg tilhugsun að skipta út heitri sólinni og hvítum söndum fyrir naprar fjallshlíðar og stórhríð. „Svo litlar undirtektir hlaut þessi hugmynd að konan mín hélt að ég væri orðinn afhuga henni,“ grínast bókaútgefandinn með. En á annan í jólum rofaði til þegar Egill Örn sonur hans fann fín tilboð á lastminute.com. „Ég tók umsvifalaust gleði mína á ný þegar ég sá að það liggur við að Egyptar borgi fólki fyrir að koma í heimsókn þar sem ferðamönnum hugnast ekki það áhugamál þar um slóðir að sprengja ferðamenn í loft upp.“ Jóhann og fjölskylda héldu því til Egyptalands á hádegi á föstudag þrátt fyrir að Mið-Austurlönd bókstaflega logi vegna ófriðarins á Gaza-strönd. „Já, og hún er víst ekki lengi langt undan. Kannski að maður geti bara orðið að liði,“ segir Jóhann, hvergi smeykur og bætir því við að hann fljúgi frá Íslandi með góðri samvisku. „Eftir að ferðin var í höfn gat ég unnið af miklu kappi enda með góða gulrót á spýtunni.“ - fgg
Mest lesið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Sjá meira