Sjóræningjar slepptu skipi eftir sjö mánuði Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. desember 2009 07:30
Sómalskir sjóræningar létu í gær af hendi úkraínska flutningaskipið Ariana með 24 manna áhöfn eftir að þeir fengu tvær og hálfa milljón dollara í lausnarfé. Sjóræningjarnir náðu skipinu á sitt vald 2. maí í vor þegar það var á leið frá Mið-Austurlöndum til Brasilíu með 10.000 tonn af sojabaunum. Áhöfnin var orðin nokkuð langeygð eftir frelsinu en samningar um tvær og hálfa milljón dollara í lausnargjald náðust í vikunni og fór greiðslan fram í gær. Þá hófst vinna við að koma vélum skipsins í gang sem er töluvert ferli eftir sjö mánaða stopp. Viktor Júshenkó, forseti Úkraínu, flutti ávarp af þessu tilefni í gær og óskaði áhöfninni og fjölskyldum hennar til hamingju með frelsið. Eins og venja er voru sjóræningjarnir hinir alþýðlegustu og veittu Telegraph viðtal strax og falast var eftir því. Mohamed Ilkaase, sennilega sá þeirra sem er sleipastur í ensku, sagði að síðustu sjóræningjarnir hefðu farið frá borði um leið og peningarnir hefðu borist. Hann kvartaði yfir því að Grikkir hefðu verið ósveigjanlegir í samningum til að byrja með, en útgerð skipsins er grísk, upphaflegt lausnargjald hefði átt að vera 3,7 milljónir dollara en að lokum hefðu þeir ákveðið að sætta sig við 2,5 og málið væri dautt eins og þar segir. Sómalskir sjóræningjar líta ekki á iðju sína sem afbrot heldur eingöngu strangheiðarlega tekjuöflun enda hagkerfi landsins rjúkandi rústir og ekki auðvelt að draga þar fram lífið.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira