Innlent

Nýr Suðurlandsvegur hannaður án vegriða

Reykjanesbraut
Hönnun svipaðra mannvirkja í Evrópu hafa án undantekninga vegrið á milli akreina.
fréttablaðið/vilhelm
Reykjanesbraut Hönnun svipaðra mannvirkja í Evrópu hafa án undantekninga vegrið á milli akreina. fréttablaðið/vilhelm

Hönnun á tvöföldum Suðurlandsvegi og hugmyndir um tvöföldun milli Hveragerðis og Selfoss gera ekki ráð fyrir vegriðum á milli akreina. Miðjugeil verður hins vegar á milli akreina líkt og á vegarkaflanum við Arnarnesbrú á Hafnarfjarðarvegi þar sem þrír menn létust í umferðarslysi stuttu fyrir jól.

Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, bendir á þetta og segir að hönnun vega þar sem miðjugeil er á milli akreina verði að skoðast í því ljósi að hún komi umferðaröryggi ekkert við.

„Þvert á móti magnar hún upp hættuna. Fjarlægð milli akreina er vissulega til bóta en hins vegar getur geilin virkað sem stökkpallur fari bílar yfir hana,“ segir Ólafur. „Svona er öll Reykjanesbrautin og því miður eru menn að teikna nýja Suðurlandsveginn nákvæmlega eins. Vegrið er eina fullkomna lausnin, enda notuð af öðrum þjóðum til að auka umferðaröryggi. “

Ólafur segir að það sama megi segja um Miklubraut, Vesturlandsveg og Hafnarfjarðarveginn. Á þessum vegum, þar sem umferðin er hvað mest hér á landi, séu fimmtíu til sextíu kílómetrar þar sem nauðsynlegt sé að setja upp vegrið.

„Það er kaldranalegt að þurfa að segja það en slysið á dögunum gæti aðeins verið forsmekkurinn ef ekkert verður að gert.“ Ólafur segir að eftir að Reykjanesbraut var tvöfölduð hafi litlu munað að stórslys yrði í sex tilfellum þar sem bílar hafa farið yfir miðju­geil og yfir á ak­reinar með umferð úr gagnstæðri átt. Vegrið kosta tíu til fimmtán milljónir króna á hvern kílómetra vegar, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Eins og greint hefur verið frá í fréttum undanfarna daga telur Ágúst Mogensen, framkvæmdastjóri rannsóknanefndar umferðarslysa, að vegrið á slysstaðnum við Arnarnesbrú hefði að öllum líkindum afstýrt slysinu.

Uppsetning vegriða er viðamikill þáttur í átaki stjórnvalda í umferðaröryggismálum. Sérstakt verkefni var sett á laggirnar í upphafi árs 2007 þar sem umhverfi vega, og vegrið í því samhengi, eru sérstaklega til skoðunar. Gert er ráð fyrir að alvarlega slösuðum og látnum fækki um tuttugu prósent hið minnsta ef umhverfi vega verður bætt verulega, segir í skýrslu samráðshóps um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar frá því í maí.- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×