Nýr Suðurlandsvegur hannaður án vegriða 29. desember 2009 02:30 Reykjanesbraut Hönnun svipaðra mannvirkja í Evrópu hafa án undantekninga vegrið á milli akreina. fréttablaðið/vilhelm
Hönnun á tvöföldum Suðurlandsvegi og hugmyndir um tvöföldun milli Hveragerðis og Selfoss gera ekki ráð fyrir vegriðum á milli akreina. Miðjugeil verður hins vegar á milli akreina líkt og á vegarkaflanum við Arnarnesbrú á Hafnarfjarðarvegi þar sem þrír menn létust í umferðarslysi stuttu fyrir jól. Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, bendir á þetta og segir að hönnun vega þar sem miðjugeil er á milli akreina verði að skoðast í því ljósi að hún komi umferðaröryggi ekkert við. „Þvert á móti magnar hún upp hættuna. Fjarlægð milli akreina er vissulega til bóta en hins vegar getur geilin virkað sem stökkpallur fari bílar yfir hana,“ segir Ólafur. „Svona er öll Reykjanesbrautin og því miður eru menn að teikna nýja Suðurlandsveginn nákvæmlega eins. Vegrið er eina fullkomna lausnin, enda notuð af öðrum þjóðum til að auka umferðaröryggi. “ Ólafur segir að það sama megi segja um Miklubraut, Vesturlandsveg og Hafnarfjarðarveginn. Á þessum vegum, þar sem umferðin er hvað mest hér á landi, séu fimmtíu til sextíu kílómetrar þar sem nauðsynlegt sé að setja upp vegrið. „Það er kaldranalegt að þurfa að segja það en slysið á dögunum gæti aðeins verið forsmekkurinn ef ekkert verður að gert.“ Ólafur segir að eftir að Reykjanesbraut var tvöfölduð hafi litlu munað að stórslys yrði í sex tilfellum þar sem bílar hafa farið yfir miðjugeil og yfir á akreinar með umferð úr gagnstæðri átt. Vegrið kosta tíu til fimmtán milljónir króna á hvern kílómetra vegar, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Eins og greint hefur verið frá í fréttum undanfarna daga telur Ágúst Mogensen, framkvæmdastjóri rannsóknanefndar umferðarslysa, að vegrið á slysstaðnum við Arnarnesbrú hefði að öllum líkindum afstýrt slysinu. Uppsetning vegriða er viðamikill þáttur í átaki stjórnvalda í umferðaröryggismálum. Sérstakt verkefni var sett á laggirnar í upphafi árs 2007 þar sem umhverfi vega, og vegrið í því samhengi, eru sérstaklega til skoðunar. Gert er ráð fyrir að alvarlega slösuðum og látnum fækki um tuttugu prósent hið minnsta ef umhverfi vega verður bætt verulega, segir í skýrslu samráðshóps um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar frá því í maí.- shá
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Sjá meira