Innlent

Sendiherraskipti Kínverja - tímasetning er tilviljun

Dalai Lama skekur Kína sem og fréttastofu RÚV.
Dalai Lama skekur Kína sem og fréttastofu RÚV.

Sendiherraskipti voru í undirbúningi samkvæmt Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, sem lét kanna málið varðandi sendiherra Kína í dag. Hann telur að hugsanlega sé um tilviljun að ræða sem ekki tengist diplómatískum viðbrögðum vegna heimsóknar Dalai Lama.

Fréttastofa RÚV greindi frá því í gær að kalla ætti Zhang Keyuan, sendiherra Kína á Íslandi, heim. Í viðtali við Fréttastofu Vísis og Stöðvar 2 í gær sagði sendiherrann sjálfur það fráleitt.

Það var svo í dag sem mbl.is náði sambandi við aðstoðarmann sendiherrans en hann sagði í viðtali að það væri ekki búið að kalla sendiherrann heim, hvorki vegna heimsóknar Dalai Lama, né af nokkrum öðrum ástæðum.

Steingrímur sagði í Kastljósi að hann hefði kannað málið og þá komið í ljós að sendiherrann væri á leiðinni heim, aftur á móti yrði annar skipaður í hans stað. Tímasetningin sé því tilviljun.

Dalai Lama var áður í heimsókn hjá Danmörku en þá hittu bæði utanríkisráðherra og forsætisráðherra Danmerkur andlega leiðtogann. Sendiherra Dana í Kína var kallaður á fund utanríkisráðherra í Kína í kjölfarið og honum tjáð ónánægja með málið. Eins v ar gert með þann íslenska.

Engu að síður hefur engin krafa verið uppi um að kalla sendiherra Kína frá Danmörku.

Hvorki utanríkisráðherra né forsætisráðherra Íslands hittu Dalai Lama. Aftur á móti hitti Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, andlega leiðtogann.

Þau gerðu það sem óbreyttir borgarar að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra.

Því er þess enn beðið eftir staðfestingu á því að sendiherrann hafi í raun verið kallaður heim. Þess má geta að RÚV hefur ekki náð tali af sendiherranum sjálfum.


Tengdar fréttir

Vísar á kínversk stjórnvöld

„Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim.

Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum

Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.

Sendiherra Kína ekki á förum

Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands.

Harkaleg viðbrögð

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið.

Helstu ráðamenn fjarri Dalai Lama

Sendiherra Kína á Íslandi lýsti í gær óánægju ríkis­stjórnar sinnar með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu alþingismenn hittu Dalai Lama í gær og fyrradag.

Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim

„Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins.

Sendiherrann kallaður heim

Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár.

Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama

Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum.

Fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar fordæmir ríkisstjórnina fyrir að hitta ekki Dalai Lama trúarleiðtoga Tíbeta sem kom til landsins í gærkvöldi. Hún gagnrýnir einnig forgangsröðun forseta Íslands, sem hafi boðið Mörthu Stewart um landið en sé ekki viðstaddur þegar trúarleiðtogi útlægrar þjóðar Tíbeta heimsækir Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×