Lífið

Pólskur fiðluleikari kosinn Ungfrú Reykjavík - myndir

Magdalena Dubik.
Magdalena Dubik.

Magdalena Dubik, 22 ára, var valin Ungfrú Reykjavík á Broadway í gærkvöld.

Magdalena hefur stundað fiðluleik í tólf ár og nemur að sama skapi fjarnám við Fjölbrautaskólann í Ármúla. Hún stefnir á læknisfræði í framtíðinni.

Sylvia Dagmar Friðjónsdóttir, Magdalena og Elísa Guðjónsdóttir.

Foreldrar Magdalenu eru Zbigniew Alexander Dubik, fiðluleikar, og Alina Dubik, óperusöngkona.

Sylvia Dagmar Friðjónsdóttir, 19 ára, varð í 2. sæti og Elísa Guðjónsdóttir 19 ára í 3. sæti.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 18 ára, sigraði símakosninguna og Hlín Arngrímsdóttir, 18 ára, var kosin vinsælasta stúlkan.


Tengdar fréttir

Húsfyllir á Broadway í gær - myndir

Húsfyllir var á Ungfrú Reykjavík sem haldin var á Broadway í gærkvöld þegar Magdalena Dubik, 22 ára fiðluleikari, bar sigur úr bítum. Þéttsetinn salurinn fagnaði 23 keppendum ákaft þegar þær sprönguðu um sviðið. Meðfylgjandi má sjá myndir af kátum gestunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.