Störf borgarstarfsmanna í óvissu 31. mars 2009 18:02 Oddvitar Samfylkingar og VG í borgarstjórn. Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir.
Minnihlutinn í borgarstjórn sat hjá við afgreiðslu á endurskoðaðri fjárhagsáætlun í dag. Í bókun borgarfulltrúa Vinstri grænna og Samfylkingarinnar segir að störf borgarstarfsmanna séu í óvissu á flestum sviðum borgarinnar og ljóst að kennurum fækki næsta haust. Borgarfulltrúarnir telja að leiðarljós aðgerðaráætlunar frá því í haust sé í uppnámi. „Nú liggur endurskoðunin fyrir án þess að minnihlutinn hafi fengið aðkomu að vinnunni, né heldur þeim gögnum sem eru afrakstur hennar. Enginn faglegur rökstuðningur liggur fyrir þeirri forgangsröðun sem meirihlutinn leggur nú til, heldur eru áherslurnar fyrst og fremst bókhaldslegs eðlis," segir í bókun minnihlutans. Borgarfulltrúarnir telja fráleitt að skera niður 260 milljónir til mannaflsfrekra viðhaldsframkvæmda. Atvinnuleysi sé ekki bara félagsleg meinsemd heldur afar kostnaðarsöm fyrir samfélagið til langs tíma. Borgaryfirvöld eigi að tryggja sem allra flestum einstaklingum störf. Í bókuninni segir að gjaldskrár á leikskólum muni hækka samkvæmt fjárhagsáætluninni. Allir foreldrar sem nýti meira en átta klukkustundir þurfi að borga meira. „Grunnþjónustan er ekki varin þegar til stendur að skera niður kennslumagn í 2.-4. bekk, alls 15 kennsluvikur. Grunnþjónustan er jafnframt skert því ekki á að þjónusta börn á frídögum skóla í frístundaheimilum. Þessi skerðing getur telast þjóðhagslega óhagkvæm og bitnar fyrst og fremst á ungum börnum og foreldrum þeirra." Ytri forsendur áætlunarinnar hafa ekki verið leiðréttar og áætlunin í heild ber með sér að til stendur að stilla upp áætlun sem ekki er í samræmi við veruleikann heldur hluti af pólitísku sjónarspili meirihlutaflokkanna, segir í bókun borgarfulltrúa Vinstri grænna og Samfylkingar.
Tengdar fréttir Tekist á um endurskoðaða fjárhagsáætlun Borgarfulltrúar tókust á um endurskoðaða fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 á aukafundi borgarstjórnar í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði að áætlanir virðist ætli að standa. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar, gagnrýndi að minnihlutinn hafi ekki fengið aðgang að vinnugögnum við endurskoðun fjárhagsáætlunar. 31. mars 2009 16:16 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira
Tekist á um endurskoðaða fjárhagsáætlun Borgarfulltrúar tókust á um endurskoðaða fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 á aukafundi borgarstjórnar í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði að áætlanir virðist ætli að standa. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar, gagnrýndi að minnihlutinn hafi ekki fengið aðgang að vinnugögnum við endurskoðun fjárhagsáætlunar. 31. mars 2009 16:16