Austantjaldskaggarnir seljast sem heitar lummur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. nóvember 2009 08:08 Trabant - lúxusútgáfan.
Safnarar keppast um að komast yfir gamlar austantjaldsbifreiðar á borð við Trabant, Lödu og Skóda. Hver man ekki eftir gamla góða Skódanum á íslenskum vegum, bíl sem nánast eingöngu virtist koma í appelsínugulum lit og hafði vélina í skottinu. Þá má einnig minnast Lödunnar sígildu, hins pólska Fiats 125 sem gerði ekki annað en að bila og síðast en alls ekki síst tveggja strokka steingráa Trabantsins sem bjó yfir heilum 26 hestöflum og yrði væntanlega eftirsóttur gripur nú á dögum miðað við verðlagningu eldsneytis. Bílasafnarar um allan heim hugsa sig ekki um tvisvar bjóðist þeim að kaupa forngripi á borð við þá sem hér er lýst. Talsmaður Trabant-klúbbs Ungverjalands segir í viðtali við Reuters að menn séu nánast reiðubúnir að láta útlim fyrir Trabant í toppstandi en framleiðslu Trabantsins austurþýska var hætt um svipað leyti og Berlínarmúrinn féll. Þannig hafi einn félagi í klúbbnum nýverið greitt eina og hálfa milljón forinta, sem samsvara rúmum milljón krónum, fyrir Trabant sem leit út eins og nýr. Ungverjar líta til sovétáranna með ljúfsárum minningum, að minnsta kosti hvað bíla snertir. Einn félagi í bílaklúbbnum segir frá því þegar hann pantaði sér glænýja Lödu snemma á níunda áratugnum. Framleiðandinn í Sovétinu lofaði henni eftir fimm ár en hún kom eftir átta, tvöfalt dýrari en lofað hafði verið.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira