Dularfullt leynifangelsi í litháískum reiðskóla Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. nóvember 2009 07:17
Bandaríska leyniþjónustan CIA rak leynilegt fangelsi fyrir liðsmenn al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í gömlum reiðskóla í Litháen. Litháíska þingið hefur fyrirskipað rannsókn þessa dularfulla máls eftir að Dalia Grybauskaite, forseti landsins, sagðist hafa fengið upplýsingar um málið eftir krókaleiðum. ABC-fréttastofan kannaði málið og fékk það upp úr fyrrverandi liðsmönnum CIA, sem að sjálfsögðu eru ekki nafngreindir, að leyniþjónustan hafi látið byggja leynilegt fangelsi frá grunni á lóð reiðskólans árið 2004. Skólinn hafði þá hætt starfsemi og umferð um lóðina verið lítil en staðurinn er í rúmlega 20 kílómetra fjarlægð frá litháísku höfuðborginni Vilnius. Eftir að fangelsinu hafði verið komið upp, að hluta til neðanjarðar og með tilheyrandi öryggismyndavélum og öðrum eftirlitsbúnaði, segja heimildamenn ABC að flogið hafi verið með að minnsta kosti átta grunaða al-Qaeda-liðsmenn til Litháen og þeir vistaðir og yfirheyrðir í gamla reiðskólanum. Litháískir stjórnmálamenn, sem gegndu embættum árið 2004, þverneita allri vitneskju um málið og segja engin gögn benda til þess að fangelsið hafi verið til. Grybauskaite forseti er þó ekki sátt við þær skýringar og segir að hafi þetta raunverulega átt sér stað þurfi litháískir valdamenn að biðja alþjóðasamfélagið afsökunar auk þess að tryggja að svona lagað gerist aldrei aftur í landinu. Litháen er þriðja Evrópusambandslandið sem grunur leikur á að hafi hýst leynifangelsi á vegum CIA en hin tvö eru Pólland og Rúmenía.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira