Eitraði fyrir óléttri hjákonu eiginmannsins 5. desember 2009 23:00 Smábarn. Mynd tengist ekki fréttinni beint.
Rétt rúmlega þrítug kona frá Brooklyn í New York hefur verið handtekin fyrir að hafa reynt að myrða hvítvoðung tvívegis samkvæmt New York Post. Konan, sem heitir Kisha Jones, komst að því að Monique Hunter ætti í ástarsambandi við eiginmann hennar og það sem meira var; að hún var ólétt eftir framhjáhaldið. Kisha, sem sjálf á þrjú börn með hinum ótrúa eiginmanni sínum, ákvað því að byrla hjákonuna eitur. Áætlun sviknu eiginkonunnar var í raun furðu flókin því hún falsaði lyfseðil og lét líta út eins og lyfin væru önnur en þau reyndust vera og að læknir konunnar hefði skrifað upp á þau. Svo lét hún senda hjákonunni smáskilaboð um að lyf, sem hún tók að jafnaði, væru tilbúin í apóteki. Hjákonan fór og sótti lyfin óaðvitandi að um sterk fóstureyðingarlyf væri að ræða. Þegar hún innbyrgði þau fékk hún hríðir og eignaðist barnið nokkrum klukkutímum síðar, þó nokkuð fyrir tímann. Fæðingin gekk vel og barnið fæddist heilbrigt. Þegar Kisha komst að því að hin myrka ætlunargerð hafði mistekist varð hún sér út um banvænt eitur og blandaði því við mjólk. Svo fór hún á spítalann þar sem hjákonan og barnið lágu eftir erfiða fæðinguna. Þar laug Kisha að starfsfólki að hún væri móðir barnsins og ætlaði að gefa því mjólk í pela. Hún gekk meira að það segja svo langt að sýna þeim pelann með eitrinu en hjúkrunarkonur áttuðu sig á því að vökvinn gæti ekki verið brjóstamjólk. Starfsfólkinu grunaði strax að þarna væri maðkur í mysunni og kölluðu því á lögregluna. Þá fyrst kom skuggalega áætlun Kishu í ljós. Lögreglan handtók Kishu og sætir hún nú varðhaldi. Hún hefur þegar verið ákærð fyrir morðtilraun, fölsun á lyfseðlum og að hafa framkvæmt ólöglega fóstureyðingu. Eiginmaður hennar er ekki grunaður um að hafa vera með í ráðum.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira