Vitnar um samning við mafíuna 5. desember 2009 05:30 Mikil öryggisgæsla var við réttarhöldin í Ítalíu í gær. Gaspare Spatuzza bar vitni hulinn hvítu tjaldi. Fréttablaðið/AP
Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, er sagður hafa gert samning við mafíuna á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta kom fram í framburði dæmds mafíósa, Gaspare Spatuzza, í réttarhöldum sem fram fóru á Ítalíu í gær. Berlusconi hefur borið af sér ásakanirnar. Spatuzza er vitni saksóknara í áfrýjunarréttarhöldum sem fram fara í máli Marcello Dell‘Utri, náins pólitísks samstarfsmanns Berlusconis. Sá var árið 2004 dæmdur til níu ára fangelsisvistar fyrir tengsl sín við mafíuna. Berlusconi hefur ekki verið kallaður til að bera vitni við réttarhöldin. Spatuzza, sem situr af sér lífstíðardóm fyrir aðild að nokkrum morðum, sagði fyrir rétti í gær að árið 1993 hefði yfirmaður hans, Giuseppe Graviano, sagt honum að mafían hefði gert samkomulag við Berlusconi sem hafa myndi í för með sér óskilgreindan „ávinning“ fyrir mafíuna. Fjölmiðlakóngurinn Berlusconi hóf feril sinn í stjórnmálum nokkrum mánuðum síðar og komst til valda í fyrsta sinn sem forsætisráðherra í kosningunum árið 1994. Ávæningur af ásökunum Spatuzzas hefur verið í umræðunni í nokkra daga. Bæði Berlusconi og Dell‘Utri hafa sagt þær vera tilhæfulausar og fáranlegar og neitað öllum tengslum við skipulagða glæpastarfsemi. oka@frettabladid.is
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira