Innlent

Samkomulag í höfn á Alþingi

Gengið var frá samkomulagi um fyrirkomulag þingstarfanna það sem eftir lifir dags á fundi formanna stjórnmálaflokkanna sem lauk á fimmta tímanum. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður þriðju og síðustu umræðu um Icesave frumvarpið haldið áfram til að verða klukkan átta í kvöld. Þá verður gert hlé í korter áður en forystumenn flokkanna flytja lokaræður sínar í málinu. Í framhaldinu verður gengið til atkvæða.

Á sama tíma og formennirnir funduðu ríkti ringulreið í þingsalnum þar sem þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins gerðu ítrekað athugasemdir við fundarstjórn forseta og óskaðu eftir því að þingfundi yrði frestað þar sem nýjar upplýsingar um Icesave málið væru enn að berast.

Bréf sem barst frá bresku lögmannsstofunni Mischon de Reya í gær hefur vægast sagt valdið miklum deilum á þinginu.




Tengdar fréttir

Pólitísk flétta stjórnarandstöðunnar

„Ég lít á þetta sem pólitíska fléttu að hálfu stjórnarandstæðinga sem hafa greinilega góða tengingu inn í þessa lögfræðistofu og eru að reyna að róta upp í málinu og helst fella og knésetja ríkisstjórnina,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, um bréf bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya sem barst í gær.

Formenn funda um Icesave

Formenn flokkanna munu funda um stöðuna í Icesave málinu klukkan tíu. Fundur fjárlaganefndar sem hófst klukkan rúmlega átta stendur enn yfir. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að staðan sem sé komin upp sé afar alvarleg.

Samkomulag í burðarliðnum á Alþingi

Þingfundi hefur verið frestað enn og aftur og nú er stefnt að því að fundurinn hefjist klukkan þrjú. Samkvæmt heimildum fréttastofu er stefnt að því að fundurinn hefjist sannarlega á þeim tíma og að þá verði mælendaskrá í Icesave málinu tæmd.

Þingfundi frestað enn og aftur

Gert er ráð fyrir að þingfundur hefjist á Alþingi klukkan hálfþrjú, eftir ítrekaðar frestanir í allan dag. Fundur var að hefjast í fjárlaganefnd en engin niðurstaða náðist á fundi formanna flokkanna sem haldinn var í dag. Formennirnir freistuðu þess að ná samkomulagi um dagskrá þingsins án árangurs en vonast er til þess að málin skýrist eftir fund fjárlaganefndar.

Þriðju Icesave-umræðu frestað á miðnætti

Þriðju umræðu um Icesave-frumvarpið var frestað rétt fyrir miðnætti og var fjárlaganefnd boðuð á fund klukkan hálfeitt í nótt. Þá voru níu þingmenn enn á mælendaskrá.

Þingfundi frestað til hálftvö

Fundi Alþingis sem átti að hefst klukkan hálfellefu hefur ítrekað verið frestað, nú síðast til klukkan hálftvö. Óvissa er um framhald Icesave málsins eftir að nýjar upplýsingar bárust frá bresku lögmannsstofu sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum. Þessu hafa bæði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, vísað á bug.

„Ég tek ekki þátt í þessum leik“

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir þróun mála í Icesave málinu hafa verið afar dapurlega. Búið sé að snúa hlutunum á hvolf. Hann segist ekki taka þátt í þeim leik lengur. Honum sé misboðið

Ringulreið á Alþingi

Ringulreið ríkir á Alþingi þessa stundina og alls óvíst um framhald Icesave málsins. Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað gert athugasemdir við fundarstjórn forseta og óskað eftir því að þingfundi verði frestað þar sem nýjar upplýsingar um málið væru enn að berast.

Þingfundi frestað

Fundi Alþingis sem átti að hefst klukkan hálf ellefu var frestað um hálftíma. Óvissa er um framhald Icesave málsins eftir að nýjar upplýsingar bárust frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum. Þessu vísa stjórnarliðar á bug.

Svavar neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar

Svavar Gestsson, sem fór fyrir samninganefndinni í Icesave málinu svokallaða neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar í morgun samkvæmt heimildum fréttastofu. Guðbjartur Hannesson formaður nefndarinnar kallaði hann á fund í ljósi nýrra upplýsinga sem bárust frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum.

Alþingi í gíslingu Mischon de Reya

Fundi er nú lokið í fjárlaganefnd og eftir því sem fréttastofa kemst næst lauk honum án niðurstöðu. Óskað var eftir því við bresku lögmannsstofuna Mischon de Reya að hún léti nefndinni í té ákveðna tölvupósta sem vísað var til í skýrslu stofunnar sem skilað var á dögunum. Biluð tölva virðist hins vegar koma í veg fyrir að það sé hægt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×