Innlent

Ringulreið á Alþingi

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. Mynd/GVA

Ringulreið ríkir á Alþingi þessa stundina og alls óvíst um framhald Icesave málsins. Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað gert athugasemdir við fundarstjórn forseta og óskað eftir því að þingfundi verði frestað þar sem nýjar upplýsingar um málið væru enn að berast.

Þingfundur hófst klukkan þrjú eftir að hafa verið frestað oft í dag. Bréf sem barst frá bresku lögmannsstofunni Mischon de Reya í gær hefur valdið miklum deilum á þinginu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja að upplýsingarnar kalli á ítarlegri skoðun á Icesave málinu þar sem upplýsingum hafi verið haldið leyndum en stjórnarþingmenn segja ekkert nýtt í gögnunum.

Þegar þetta er skrifað eru 15 á mælendaskrá í þriðju og síðustu umræðu Icesave frumvarpsins.


Tengdar fréttir

Pólitísk flétta stjórnarandstöðunnar

„Ég lít á þetta sem pólitíska fléttu að hálfu stjórnarandstæðinga sem hafa greinilega góða tengingu inn í þessa lögfræðistofu og eru að reyna að róta upp í málinu og helst fella og knésetja ríkisstjórnina,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, um bréf bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya sem barst í gær.

Formenn funda um Icesave

Formenn flokkanna munu funda um stöðuna í Icesave málinu klukkan tíu. Fundur fjárlaganefndar sem hófst klukkan rúmlega átta stendur enn yfir. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að staðan sem sé komin upp sé afar alvarleg.

Samkomulag í burðarliðnum á Alþingi

Þingfundi hefur verið frestað enn og aftur og nú er stefnt að því að fundurinn hefjist klukkan þrjú. Samkvæmt heimildum fréttastofu er stefnt að því að fundurinn hefjist sannarlega á þeim tíma og að þá verði mælendaskrá í Icesave málinu tæmd.

Þingfundi frestað enn og aftur

Gert er ráð fyrir að þingfundur hefjist á Alþingi klukkan hálfþrjú, eftir ítrekaðar frestanir í allan dag. Fundur var að hefjast í fjárlaganefnd en engin niðurstaða náðist á fundi formanna flokkanna sem haldinn var í dag. Formennirnir freistuðu þess að ná samkomulagi um dagskrá þingsins án árangurs en vonast er til þess að málin skýrist eftir fund fjárlaganefndar.

Þriðju Icesave-umræðu frestað á miðnætti

Þriðju umræðu um Icesave-frumvarpið var frestað rétt fyrir miðnætti og var fjárlaganefnd boðuð á fund klukkan hálfeitt í nótt. Þá voru níu þingmenn enn á mælendaskrá.

Þingfundi frestað til hálftvö

Fundi Alþingis sem átti að hefst klukkan hálfellefu hefur ítrekað verið frestað, nú síðast til klukkan hálftvö. Óvissa er um framhald Icesave málsins eftir að nýjar upplýsingar bárust frá bresku lögmannsstofu sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum. Þessu hafa bæði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, vísað á bug.

„Ég tek ekki þátt í þessum leik“

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir þróun mála í Icesave málinu hafa verið afar dapurlega. Búið sé að snúa hlutunum á hvolf. Hann segist ekki taka þátt í þeim leik lengur. Honum sé misboðið

Fullkomin óvissa um þingstörf á morgun

Fullkomin óvissa er um það hvernig þingstörfum verður háttað á morgun eftir að ný gögn frá lögmannsstofunni Mischon de Reya voru kynnt í fjárlaganefnd Alþingis í kvöld.

Þingfundi frestað

Fundi Alþingis sem átti að hefst klukkan hálf ellefu var frestað um hálftíma. Óvissa er um framhald Icesave málsins eftir að nýjar upplýsingar bárust frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum. Þessu vísa stjórnarliðar á bug.

Svavar neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar

Svavar Gestsson, sem fór fyrir samninganefndinni í Icesave málinu svokallaða neitaði að mæta á fund fjárlaganefndar í morgun samkvæmt heimildum fréttastofu. Guðbjartur Hannesson formaður nefndarinnar kallaði hann á fund í ljósi nýrra upplýsinga sem bárust frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya sem stjórnarandstæðingar segja benda til þess að tilteknum upplýsingum hafi verið haldið leyndum fyrir þingmönnum.

Alþingi í gíslingu Mischon de Reya

Fundi er nú lokið í fjárlaganefnd og eftir því sem fréttastofa kemst næst lauk honum án niðurstöðu. Óskað var eftir því við bresku lögmannsstofuna Mischon de Reya að hún léti nefndinni í té ákveðna tölvupósta sem vísað var til í skýrslu stofunnar sem skilað var á dögunum. Biluð tölva virðist hins vegar koma í veg fyrir að það sé hægt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×