Orkuskattar endurskoðaðir 29. október 2009 04:15 Undirritun í júní. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. fréttablaðið/stefán
Eftir viðræður síðustu daga á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um framtíð stöðugleikasáttmálans sendu forsætis- og fjármálaráðherra frá sér yfirlýsingu í gær um framgang málsins. Kemur þar fram þung áhersla stjórnvalda á að samstarfið haldi áfram á þeim forsendum sem samdist um í júní síðastliðinn. Gerð sáttmálans hafi verið sögulegt skref og sameiginlegur áfangi til að hefja endurreisn efnahagslífsins og auka tiltrú þjóðarinnar á framtíðina. „Það sem þegar hefur áunnist við framfylgd sáttmálans gefur ótvírætt til kynna að það er þjóðarnauðsyn að halda því verki áfram,“ segir í yfirlýsingunni og eru tiltekin sex verkefni sem ríkisstjórnin setur á oddinn til að svo geti orðið. Eftir viðræður síðustu daga hefur komið fram að það sem helst hefur verið tekist á um er orku- og auðlindaskattur. Ríkisstjórnin lýsir yfir vilja sínum til að áform um þessa skatttekju verði endurskoðuð. Eins að ríkisstjórnin muni á næstu vikum eiga náið samráð við aðila vinnumarkaðarins um að greina forsendur skatta í fjárlagafrumvarpi ársins 2010. Í stöðugleikasáttmálanum frá því í júní voru tiltekin nokkur verkefni í atvinnumálum sem átti að liðka fyrir. Álver í Helguvík og stækkun álversins í Straumsvík voru þar sérstaklega tiltekin. Í yfirlýsingunni nú er þetta ítrekað. Í yfirlýsingunni er hnykkt á því að engin breyting hafi orðið á því hvernig verði tekið á álitaefnum í sjávarútvegi. Endurskoðun fiskveiðistjórnunar verði í höndum nefndar sjávarútvegsráðherra sem skipuð var í sumar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira