Kostnaður nýju ríkisbankanna minni en áætlað var 1. apríl 2009 18:34
Kostnaður íslenska ríkisins vegna nýju ríkisbankanna þriggja verður minni en áætlað var. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hefur skilað Fjármálaeftirlitinu frumskýrslu um verðmat bankanna. Við setningu neyðarlaganna í október var alþjóðleg starfsemi bankanna skilinn frá innlendri starfsemi og varð hún eftir í gömlu bönkunum. Nýju bankarnir yfirtóku allar innstæðuskuldbindingar gömlu bankanna og eignir sem sem tengjast íslenskri starfsemi. Í kjölfarið hófst vinna við verðmat á gömlu og nýju bönkunum. Ætlunin er að gefa út skuldabréf til gömlu bankanna í skiptum fyrir þær eignir sem hafa runnið inn í nýju bankanna. Deloitte og breska fjármálafyrirtækið Oliver Wyman voru ráðin til að verðmeta eignir nýju bankanna. Deloitte skilaði í gær til Fjármálaeftirlitsins frumskýrslu um verðmat allra bankanna. Fjármálaeftirlitið mun nú yfirfara skýrsluna og hefur Oliver Wyman yfirumsjón með gerð skuldabréfanna milli bankanna. Áætlað er að endanlegt verðmat liggi fyrir 18. Maí. Í skýrslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem birt var í nóvember var gert ráð fyrir að eigið fé bankanna yrði 275 milljarðar. Síðan þá hafa reikningar verið endurgerðir og meira af eignum skildar eftir í gömlu bönkunum en upphaflega var gert ráð fyrir. Skuldabréfið milli gömlu og nýju bankanna verður því lægra en áætlað var og því mun íslenska ríkið koma til með greiða minna stofnframlag til bankanna en búist var við.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira