Vill banna líkamlegar refsingar gagnvart börnum Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. apríl 2009 16:00 Kolbrún Halldórsdóttir vill að bannað verði að refsa börnum líkamlega.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og umhverfisráðherra, vill að óheimilt og refsivert verði að beita börn líkamlegum og andlegum refsingum. Kolbrún hefur, ásamt öðrum þingmönnum úr VG, lagt fram frumvarp þessa efnis á Alþingi. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði tekið til þriðju umræðu í dag samkvæmt dagskrá Alþingis. Kolbrún segir í samtali við fréttastofu að ástæðan fyrir frumvarpinu sé Hæstaréttardómur sem féll þar sem karlmaður var sýknaður af ákæru um um að hafa rassskellt tvö börn sem voru þá sex ára og fjögurra ára. Í dómnum segir að ekki sé lagt fortakslaust bann við því að foreldri eða annar maður með samþykki þess beiti barn líkamlegum aðgerðum til að bregðast við óþægð, heldur sé refsinæmi slíkrar háttsemi háð því að gerðir hans séu til þess fallnar að skaða barnið andlega eða líkamlega. Ekki hafi verið færðar sönnur fyrir að háttsemi ákærða hafi farið út fyrir þau mörk, sem þetta ákvæði feli í sér. Dómurinn var nokkuð umtalaður þegar að hann féll og var meðal annars gagnrýndur af Umboðsmanni barna. Kolbrún vill breyta lögum á þann hátt að börn þurfi hvorki að líða líkamlegar né andlegar refsingar.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira