Katrín vill skýringar frá MK um barnaklámsmál 1. apríl 2009 18:39
Menntamálaráðherrra ætlar að fá skýringar á því hjá skólameistara Menntaskólans í Kópavogi hvers vegna kennari sem tekinn var með barnaklám, hélt áfram kennslu. Ráðherra segir málið alvarlegt. Margréti Friðriksdóttur, skólameistara Menntaskólans í Kópavogi, var kunnugt um að lögregla hefði til rannsóknar mál Björgvins Þórissonar, enskukennara við skólann, sem síðast liðinn föstudag hlaut dóm fyrir að hafa mikið magn af klámfengnu myndefni af börnum í tölvu á heimili sínu. Hann gekkst við að eiga umrætt myndefni og var skólameistara menntaskólans gerð grein fyrir því í bréfi, dagsettu 18. nóvember í fyrra. Skólameistarinn brást ekki við og hélt maðurinn áfram kennslu, þrátt fyrir tilmæli aðstoðarsaksóknara og félagsmálaráðs Kópavogs, um að rík ástæða væri til að endurskoða hvort rétt væri að hann gengdi áfram störfum sem hefðu að gera með samskipti við börn. Menntamálaráðherra ætlar að fá skýringar hjá skólameistaranum. „Þetta verður að sjálfsögðu skoðað því þetta varðar barnaheill," sagði Katrín. „Já, það gengur ekki að fólk sem verður uppvíst að kynferðisbroti vinni í skólum," sagði ráðherrann aðspurður hvort málið væri alvarlegt. Katrín telur að það hefði átt að koma til greina að veita kennaranum leyfi frá störfum meðan rannsókn stóð yfir. „En ég held að sé mikilvægt að skólar hafi skilgreinda verkferla þegar svona mál koma upp og þetta segir okkur það að þeir hafi ekki verið nægilega skilgreindir hingað til."
Tengdar fréttir Skólameistari vissi um barnaklámsrannsókn Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi var kunnugt um að lögregla rannsakaði kennara við skólann fyrir að hafa mikið magn barnakláms í sinni vörslu. Þrátt fyrir tilmæli yfirvalda til skólameistarans um að rétt væri að endurskoða starfsvettvang kennarans var ekkert aðhafst og hélt kennarinn áfram að kenna nemendum skólans. 31. mars 2009 18:47 Hvorki nemendum, foreldrum, né samkennurum tilkynnt um barnaklámsmálið Menntaskólakennari í Kópavogi var í dag dæmdur fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann sinnti kennslu í dag. Skólastjórinn hafði ekki fyrir því að tilkynna nemendum, foreldrum eða samkennurum um málið. 27. mars 2009 18:31 Foreldrafélag vissi ekki af barnaklámskennara Foreldráð skólans sem barnaklámskennarinn starfar við vildi ekki tjá sig um veru kennarans í skólanum. Formaður foreldraráðsins sagði þó í samtali við fréttastofu að félagið hefði leitað upplýsinga um málið af hálfu skólans, en félagið hafði ekki vitneskju um málið eða rannsókn þess. 27. mars 2009 16:29 Starfsfólki MK veitt áfallahjálp Starfsfólki Menntaskólans í Kópavogi var veitt áfallahjálp í dag, en mikið uppnám hefur verið í skólanum eftir að kennari var dæmdur fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum. Margrét Friðriksdóttir, skólameistari, segist enga vitneskju hafa haft um málið. 30. mars 2009 18:43 Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Sjá meira
Skólameistari vissi um barnaklámsrannsókn Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi var kunnugt um að lögregla rannsakaði kennara við skólann fyrir að hafa mikið magn barnakláms í sinni vörslu. Þrátt fyrir tilmæli yfirvalda til skólameistarans um að rétt væri að endurskoða starfsvettvang kennarans var ekkert aðhafst og hélt kennarinn áfram að kenna nemendum skólans. 31. mars 2009 18:47
Hvorki nemendum, foreldrum, né samkennurum tilkynnt um barnaklámsmálið Menntaskólakennari í Kópavogi var í dag dæmdur fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann sinnti kennslu í dag. Skólastjórinn hafði ekki fyrir því að tilkynna nemendum, foreldrum eða samkennurum um málið. 27. mars 2009 18:31
Foreldrafélag vissi ekki af barnaklámskennara Foreldráð skólans sem barnaklámskennarinn starfar við vildi ekki tjá sig um veru kennarans í skólanum. Formaður foreldraráðsins sagði þó í samtali við fréttastofu að félagið hefði leitað upplýsinga um málið af hálfu skólans, en félagið hafði ekki vitneskju um málið eða rannsókn þess. 27. mars 2009 16:29
Starfsfólki MK veitt áfallahjálp Starfsfólki Menntaskólans í Kópavogi var veitt áfallahjálp í dag, en mikið uppnám hefur verið í skólanum eftir að kennari var dæmdur fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum. Margrét Friðriksdóttir, skólameistari, segist enga vitneskju hafa haft um málið. 30. mars 2009 18:43