Akureyrarbær þarf að greiða bætur vegna skipulagsklúðurs 24. júní 2009 16:17 Frá Akureyri.
Akureyrarbær var í dag dæmdur til þess að greiða rúmar 1.200.000 krónur vegna skipulagsklúðurs í íbúðarhverfi í bænum. Áður hafði bærinn greitt húseiganda 14 milljónir í bætur vegna málsins en það voru nágrannar húseigandans sem höfðuðu mál gegn bænum. Upphaf málsins má rekja til þess að lóðareigandi Sómatúns 6 í Naustahverfi á Akureyri, Páll Alfreðsson, verktaki, hugðist vegna jarðhalla breyta hönnun einbýlishúss þannig að það yrði tveggja hæða en ekki á einni hæð eins og skipulag gerði ráð fyrir. Nágrannar kærðu en bærinn breytti deiliskipulagi og hefur málið síðan velst um í kerfinu í þrjú ár og valdið hörðum deilum. Í janúar náði Páll samkomulagi við bæinn um 14 milljónir króna í bætur vegna klúðursins. Hann fær bara eina hæð en bærinn viðurkendi með bótunum eigin ábyrgð í því sem ekki er hægt að kalla annað en klúður. Nágrannar Sómatúns 6 fóru í mál vegna klúðursins og féll dómur í málinu í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Bærinn þarf að greiða íbúa við Sómatún fjögur rúmar 127 þúsund krónur og hjónum á númer átta 257 þúsund. Þá var dánarbúi annars nágranna einnig dæmdar 135 þúsund krónur í bætur. Einnig var bænum skylt að greiða 175 þúsund krónur til hvers einstaklings í málskostnað. Það var Þorsteinn Davíðsson sem kvað upp úrskurðinn í dag.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Sjá meira