Lífið

Sýning sýninganna frumsýnd í kvöld

MYND/HHH
Nemendaópera Söngskólans frumsýnir splunkunýjan söngleik í samvinnu við Íslensku óperuna í kvöld klukkan 20. Verkið ber heitið The Show Must Go On! og byggir á tónlist ur þekktum söngleikjum og dægurperlum frá ýmsum heimshornum. Söguþráður og samtöl koma úr smiðju söngvaranna sjálfra. ,,Hér er um að ræða sýningu sýninganna," segir Pétur Oddbergur Heimisson, einn af söngvurunum, og hlær í samtali við Vísi.

„Það er náttúrulega frábært tækifæri fyrir okkur öll að fá að vinna í Íslensku Óperunni. Við erum öll að læra klassískan söng í Söngskólanum og það er mjög gaman að fá að breyta aðeins til og syngja söngleikjatónlist. Við vorum með generalprufu í gærkvöldi og hún gekk einstaklega vel. Við vonumst til þess að troðfylla húsið bæði kvöldin. Í kvöld og á sunnudaginn enda sýning sem fólk má hreinilega ekki láta framhjá sér fara," segir Pétur Oddbergur.

MYND/HHH
Alls taka 29 af nemendum Óperudeildar Söngskólans þátt í sýningum ásamt hljóðfæraleikurum undir stjórn Kjartans Valdemarssonar. Leikstjóri sýningarinnar og höfundur dansa er Sibylle Köll.

„Sýningin er fyrir alla aldurshópa, jafnt unga sem aldna enda tónlistin fjölbreytt og söguþráðurinn bæði skemmtilegur og spennandi. Ég held að þessi sýning eigi eftir að koma fólki mjög skemmtilega á óvart," segir Pétur Oddbergur.

Fjallað var sýninguna í þættinum Ísland í dag í gærkvöldi. Hægt er að horfa á upptökuna hér.

MYND/HHH
Tvær sýningar eru ráðgerðar á verkinu. Í kvöld klukkan 20 og á sunnudaginn klukkan 17. Miðar verða seldir í miðasölu Íslensku óperunnar, í dag frá klukkan 14 til 18 og um helgina á sama tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.