Hækka lægstu launin 4. júlí 2009 07:00 Signý Jóhannesdóttir
Fulltrúar allra aðildarfélaga BSRB, utan eins, og fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands (SGS) skrifuðu í gær undir kjarasamninga við ríkið. Í samningunum er tekið mið af stöðugleikasáttmálanum, og munu því aðeins lægstu launin hækka. „Auðvitað er enginn ánægður með þessa niðurstöðu, en miðað við aðstæður er þetta það sem mögulegt var," segir Signý Jóhannesdóttir, sviðsstjóri sviðs opinberra starfsmanna innan SGS. Þeir sem lægst launin hafa munu hækka um samtals tuttugu þúsund krónur í þremur áföngum. Laun undir 210 þúsund krónum munu hækka frá 1. júlí síðastliðnum og 1. nóvember, og laun undir 310 þúsundum munu hækka 1. júní 2010. „Í þessum kjarasamningum er bara verið að horfa til allra lægstu launanna, þeir sem hafa hærri laun fá engar hækkanir," segir Árni Stefán Jónsson, starfandi formaður BSRB. Aðeins lítið hlutfall félagsmanna fær því kjarabætur þar til samningurinn rennur út, í lok nóvember 2010. Samningarnir sem undirritaðir voru í gær eru innlegg í stöðugleikasáttmálann, segir Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins. Hann segir að samið hafi verið um minni hækkanir en á frjálsum markaði, enda ekkert launungarmál að ríkið sé í erfiðri stöðu og ráði ekki við meiri hækkanir. BSRB og SGS eiga eftir að semja við sveitarfélögin og Reykjavíkurborg. Signý segir að það geti reynst erfiðara, þar sem fleiri lægra launaðir starfsmenn séu hjá sveitarfélögum, og fjárhagsstaða þeirra sé erfið. Undir það taka aðrir viðmælendur Fréttablaðsins. Ríkið á einnig eftir að semja við tugi félaga, þar með talað Bandalag háskólamanna, Félag framhaldsskólakennara og fleiri. Atkvæði verða greidd um samningana á næstunni.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Sjá meira