Fjölga borgaralega klæddum lögreglumönnum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. desember 2009 08:41
Óeinkennisklæddum lögreglumönnum í farþegaflugi verður fjölgað í kjölfar atburðanna sem áttu sér stað í flugi milli Amsterdam og Detroit á jóladag. Janet Napolitano hjá heimavarnastofnun Bandaríkjanna segir ekkert benda til þess að tilraun nígerísks verkfræðinema til að sprengja farþegaflugvél í loft upp í flugi frá Amsterdam til Detroit hafi verið hluti af alþjóðlegu hryðjuverkasamsæri. Þrátt fyrir það hefur óeinkennisklæddum og vopnuðum lögreglumönnum í bandarískum farþegaflugvélum verið fjölgað síðan atvikið átti sér stað en það hefur CNN-fréttastofan eftir öðrum og ónafngreindum heimildamanni hjá heimavarnastofnuninni. Verkfræðingurinn verðandi hafði ekki annað upp úr krafsinu en að kveikja í buxunum sínum áður en skelfingu lostin áhöfn flugvélarinnar yfirbugaði hann með aðstoð annarra farþega en bandarísk flugmálayfirvöld líta málið engu að síður mjög alvarlegum augum eins og flugfarþegar um gervalla Evrópu fengu að reyna á eigin skinni þegar þeim var gert að mæta allt að fjórum klukkustundum fyrr en ella vegna herts öryggiseftirlits og sprengjuleitar og þykir mörgum borið í bakkafullan lækinn eftir allar þær tafir sem samgöngur í Evrópu hafa mátt sæta vegna fannfergis fyrir jólin. Óeinkennisklæddu lögreglumennirnir falla í hóp annarra farþega og vekja enga athygli. Þeir bera hins vegar einu skotvopnin sem heimiluð eru um borð í farþegaflugvélum og eru sérþjálfaðir í að bera kennsl á mögulega hryðjuverkamenn um borð.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira