Innlent

Björgunarskip sigldi stjórnlaust af stað

Hannes Þ. Hafstein, eitt af björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Hannes Þ. Hafstein, eitt af björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Hannes Þ. Hafstein, eitt af björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var í dag statt við bryggju í Grindavík þegar það óhapp varð að skipið sigldi stjórnlaust af stað. Björgunarskipið tók þátt í aðgerðum þegar að togarinn Sóley Sigurjóns GK-200 strandaði við innsiglinguna í Sandgerði á fimmtudaginn.

Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu að gangsetning skipa fari fram í vélarrúmi og fyrir hana var farið yfir stjórntæki í brú og voru þau eins og vera skyldi. Þegar skipið var hins vegar gangsett fór það á ferð og sleit sig frá bryggju.

„Björgunarsveitamenn sem staddir voru á bryggjunni sýndu mikið snarræði með því að stökkva um borð og náðu þeir tökum á skipinu og forðuðu með því slysi því í höfninni voru fleiri bátar á siglingu, m.a. með börn," segir í tilkynningu. Einnig var mikið af fólki á bryggjunni sjálfri þar sem nú fer fram hátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík.

Við skoðun á búnaði skipsins eftir atvikið kom ekkert fram sem gefur ástæðu til að ætla að stjórntæki hafi verið í ólagi. Líklegast er talið að einhver óviðkomandi hafi átt við þau þar sem mikill gestagangur var um borð í skipinu.

Í tilkynningunni eru allir þeir sem atvikið snerti beðnir velvirðingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×