Breyting á dreifingu Fréttablaðsins 31. mars 2009 04:30
Frá og með 1. apríl nk. verða gerðar breytingar á dreifingu Fréttablaðsins. Með breytingunum er fest í sessi dreifing blaðsins til yfir 90 prósenta þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu og helstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Til þessa hefur dreifing blaðsins verið tryggð til 93 prósenta þjóðarinnar. Fréttablaðið verður borið út til 80 þúsund heimila sem nemur 75 prósentum allra heimila. Að auki verður blaðið aðgengilegt í Fréttablaðskössum, sem finna má í hverfum valinna þéttbýlisstaða eða á völdum dreifingar-stöðum. Við val á dreifingarstöðum var horft til dreifingarkostnaðar og lestrarmælinga. Á suðvesturhorninu, frá Borganesi til og með Selfossi, verða minniháttar breytingar, sú helsta sú að dreifingu í hús verður hætt á Kjalarnesi og Álftanesi en íbúum þar verður í staðinn boðin uppsetning Fréttablaðskassa. Dreifingu verður hætt á Snæfellsnesi og Vestfjörðum, sem og afskekktari byggðalögum landsins. Blaðinu verður áfram dreift til heimila á Akureyri auk þess sem dreifing helst óbreytt á Sauðárkróki, Blönduósi og öðrum þéttbýlisstöðum á leiðinni frá Borgarnesi til Akureyrar að Dalvík og Húsavík viðbættum. Á Austurlandi verður blaðinu áfram dreift á Seyðisfirði, í Neskaupstað, á Eskifirði, Reyðarfirði og Egilsstöðum. Dreifing á Suðurlandi verður til og með Hvolsvelli, að Vestmannaeyjum meðtöldum, en hætt verður dreifingu á Suðausturlandi. Þessa óhjákvæmilegu takmörkun á dreifingu má rekja til aukins útgáfukostnaðar Fréttablaðsins, eins og annarra dagblaða, á síðustu misserum á sama tíma og samdráttur hefur verið á auglýsingamarkaði. Gripið hefur verið til víðtækra ráðstafana á síðustu mánuðum til að stemma stigu við þessari þróun. Markmiðið með þeim er framar öðru að tryggja til frambúðar að Fréttablaðið verði öflugasta dagblað landsins. Í dag lesa 64 prósent landsmanna á aldrinum 12 til 80 ára blaðið daglega, sem er um 50 prósenta meiri lestur en á Morgunblaðinu, sem jafngildir 49 þúsundum fleiri lesendum daglega. Sé litið til helsta viðmiðunarhóps auglýsenda í aldurshópnum 18 til 49 ára eru yfirburðir Fréttablaðsins enn meiri eða 98 prósent. Í haust hófst uppsetning Fréttablaðskassa úti á landi. Sú nýbreytni hefur mælst vel fyrir. Rætt verður við fleiri sveitarstjórnir um uppsetningu Fréttablaðskassa.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira