Katrín: Við vorum ekki nógu þéttar varnarlega Óskar Ófeigur Jónsson í Tampere skrifar 24. ágúst 2009 22:35 Hólmfríður Magnúsdóttir hugguð eftir leik í kvöld. Mynd/Ossi Ahola
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, skildi ekkert í vítaspyrnudómnum sem Frakkarnir skoruðu jöfnunarmark sitt úr í kvöld. Franska liðið fékk síðan annað víti í seinni hálfleik og tryggði sér að lokum 3-1 sigur. „Vonbrigðin eru mikil og þessi úrslit eru mjög svekkjandi. Við fáum á okkur þetta víti sem við skiljum ekki því Gunna fer bara í boltann. Það hefði verið mjög gott að halda 1-0 forystu aðeins lengur," sagði Katrín og hún var ekki sátt með dómarann. „Við fengum ekkert ókeypis í þessum leik og mér hefði alveg fundist Margrét og Fríða mátt fá aðeins meira. Þetta fyrra víti var síðan dálítið áfall og við þurftum tíma til að vinna okkur upp úr því," sagði Katrín. „Það var alveg frábært að skora svona snemma. Það var mjög flott en dugði því miður ekki í dag. Við vorum að kýla boltanum of mikið fram og vorum of mikið í löngum boltum. Við getum spilað meira stutt spil og haldið boltanum því það er svo mikið auðveldara," sagði Katrín en hún viðurkennir að væntingarnar voru mjög miklar og þessi úrslit því erfið fyrir liðið. „Þetta er rosalega sárt og maður er mest svekktur með að við höfum ekki náð að stilla af spennuna og sýna okkar spil. Maður er svekktur með dómarann og allt það en þetta er samt í okkar höndum. Við vorum ekki nógu þéttar varnarlega og þær fengu að athafna sig of mikið," sagði Katrín. „Franska liðið er frábært lið en við erum búnar að setja okkur markmið. Þegar við erum komnar í svona mót þá er ekki spurning um að tapa þessu sem minnst. Við erum ekkert í þeim pakka að ætla bara að vera með. Við ætlum okkur áfram og við ætlum okkur enn áfram því Það eru alveg möguleikar ennþá fyrir okkur því þetta er ekki búið," sagði Katrín.
Mest lesið Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport „Labbar ekki inn í líkamsrækt og byrjar að sprauta í þig sterum“ Sport Toone með sögulega fullkomna tölfræði Fótbolti Raggi Nat á Nesið Körfubolti Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Körfubolti Dagskráin í dag: Blikar berjast fyrir lífi sínu í Meistaradeildinni Sport Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Körfubolti Fleiri fréttir Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Toone með sögulega fullkomna tölfræði „Það var engin taktík“ Jóhannes kominn aftur heim en ekki með KR í kvöld Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Sjáðu öll tíu mörk Messi í nýjasta metinu hans Árni farinn frá Fylki Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Skoraði sigurmark gegn Manchester United og er nú kominn til Barcelona „Mikið undir fyrir bæði lið“ Skoraði fjögur í fyrri hálfleik en öll voru dæmd af Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Ætla að spila HM-leikina meira innanhúss næsta sumar Tölfræðin á EM: Íslensku stelpurnar gáfu flestar sendingar á Cecilíu markvörð FHL bætir tveimur bandarískum við hópinn Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fékk gamlan mótherja sinn til að gráta af gleði Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Sjáðu hvernig FH rassskellti KA-menn í Krikanum í gær Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Sjáðu slagsmálin í lok úrslitaleiks HM félagsliða Leikmannasamtökin fengu ekki að mæta á fund um velferð leikmanna Chelsea pakkaði PSG saman Heimir: „Svo höfum við skitið í deigið“ Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Sævar Atli skoraði er Brann vann toppslaginn Leik lokið: England - Wales 6-1 | England flaug áfram Sjá meira