Tók hvorki myntkörfu-, bílalán né yfirdrátt 6. febrúar 2009 11:45 Jóhann Georg og amma hans Helga Möller. „
Hjá mér hefur lífið lítið breyst í kreppunni til allrar Guðslukku," svarar Helga Möller söngkona aðspurð hvernig hún tekst á við íslenskar aðstæður í dag. „Ég er ennþá flugfreyja hjá Icelandair og söngkona þess á milli ásamt því að vera fararstjóri í golfferðum fyrir Peter Salmon en að sjálfsögðu finnur maður fyrir hækkandi húsnæðislánum og hækkandi matarverði og öðrum hækkunum." „Ég er mest að syngja á Þorrablótum og árshátíðum á þessum árstíma en þó alls ekki allar helgar," svarar Helga aðspurð um sönginn. „Ég var allavega mjög heppin að vera búin að venja mig af allskonar óráðsíu. Ég er ekki með bílalán, myntkörfulán eða yfirdrátt. Það eru nokkur ár síðan ég ákvað að snúa þessu við og hefur aldrei liðið betur." „Núna á ég bara fyrir því sem ég er að gera eða bíð þar til ég hef efni á því og svo er annað að maður hefur nú stundum gott af þvi að staldra við og spyrja sig hvort maður virkilega þurfi á þessu og hinu að halda. Svarið er venjulegast nei," segir Helga. Átak í matarinnkaupum „Ég hef tekið mig mikið á varðandi matarinnkaup og nýtingu á mat og í dag finnst mér það bara virkilega skemmtilegt verkefni. Það þarf alls ekki að henda alltaf því gamla heldur á maður að láta sér þykja vænt um það og vera stoltur af því." „Ég segi það ekki, að ég, að sjálfsögðu, átti það til að kaupa eitthvað sem mig vantaði alls ekki og þarf oft að taka mig taki þessa dagana að fara ekki að eyða i eitthvað bara til þess að eyða." „En mikið rosalega verður maður stoltur ef manni tekst að standast freistingarnar. Eitt af því sem ég geri til að spara er að stunda göngutúra og heimaleikfimi en það kostar ekki neitt og eins og segir í kvæðinu heimaleikfimi er heilsubót, hressir mann upp og gerir mann stífan, hvort sem að undir er gras eða gjót, gólfteppi, elhúsborð, stóll eða dívan," segir Helga hress í bragði. „Ég hendi mér út í klukkutíma göngutúr, geri síðan magaæfingar, armbeygjur og æfingar með lóðum og enda á góðum teygjum. Ekki er verra að fara í heitt bað á eftir og gott axlanudd frá karlinum klikkar aldrei," segir Helga. Syngjandi stolt amma „Ég er mest að syngja á Þorrablótum og árshátíðum á þessum árstíma en þó alls ekki allar helgar," svarar Helga aðspurð um sönginn. „Ég vil geta átt tíma fyrir sjálfa mig og fjölskylduna og skemmtilegasta hlutverkið þessa dagana er að vera amma. Ömmustrákurinn minn Jóhann Georg, 3 ára, er sá eini sem getur stjórnað ömmu sinni algjörlega." „Hann er farinn að fara með mér í golf og fékk golfsett frá mér og manninum mínum í jólagjöf og ég get ekki beðið eftir því að fara með hann í golf i sumar. Hann fékk putter og eina kylfu í fyrrasumar og ég fór með hann sirka einu sinni í viku að æfa okkur og hann féll gjörsamlega kyllifaltur fyrir þessari íþrótt og spyr í hvert skipti sem hann sér mig hvort við séum ekki að fara í golf. Einnig situr hann límdur við sjónvarpstækið með mér þegar er verið að sýna frá golfmótum," segir Helga með bros á vör.
Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira