Innlent

Léku 33.300 holur í sumar

Efnilegur Áhugi barna og unglinga á golfíþróttinni fer sívaxandi.
fréttablaðið/hörður
Efnilegur Áhugi barna og unglinga á golfíþróttinni fer sívaxandi. fréttablaðið/hörður

Skráningar á mótaröð unglinga hafa aldrei verið betri en í ár. Um helgina fór fram sjötta og síðasta stigamót á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Alls skráðu sig 846 kylfingar á mótaröðina í sumar og spiluðu þeir því 1.850 hringi og léku 33.300 golfholur. Með þessum stóra hópi ungra kylfinga fylgir gjarnan fjöldi aðstoðarmanna og stuðningsmanna. Á mótaröðinni er keppt um stigameistaratitilinn í flokkum stráka 13-14 ára, stelpna 13-14 ára, drengja 15-16 ára, telpna 15-16 ára, pilta 17-18 ára og stúlkna 17-18 ára.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×